
Keppni í Norrænni tvíkeppni á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Keppni í skautahlaupi á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Sænsk heimildarmynd frá 2021. Sænska söngkonan og tónskáldið Ana Diaz, sem hefur ítrekað farið í kulnun, segir frá því hvernig er að koma til baka eftir að hafa keyrt harkalega á vegg. Er það yfirleitt mögulegt og hvernig er hægt að koma í veg fyrir að lenda aftur í því sama?


Tinna táknmálsálfur er sniðugur álfur sem býr í Blómabæ í Bláskógarbyggð. Hún lendir í ýmsum ævintýrum með vinum sínum Kötu kónguló og Tedda tannálfi og ef til vill lærum við líka svolítið táknmál.
Höfundur:
Laila Margrét Arnþórsdóttir
Leikur:
Tinna: Kolbrún Völkudóttir
Kata kónguló: Jan Fiurasek
Talsetning:
Tinna: Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Kata kónguló: Erla Ruth Harðardóttir
Teddi tannálfur: Björgvin Franz Gíslason og Friðrik Friðriksson
Búningar: Helga Rún Pálsdóttir
Tinna og Amelía eru að leika sér og sjá eitthvað á borðinu. Tinna heldur að það gæti verið eiturslanga í kassanum eða jafnvel ljón. Þær kíkja og sjá að þetta er bara voða falleg kisa.
Þættir þar sem krakkar setja upp leikið verk. Það eina sem þau fá er leikmynd og málsháttur. Þau búa til söguna, ákveða hver gerir hvað og æfa vel og vandlega svo allt smelli saman fyrir sýninguna í lokin. Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson. Leikstjóri: Agnar Jón Egilsson.

Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir. Að þessu sinni fræðumst við um mannslíkamann.

Stuttir þættir þar sem við kynnumst merkiskonum mannkynssögunnar. Sumar eru frægar, aðrar eru óþekktar en allar eru þær töffarar og eldhugar.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.

Sænska bakstursdrottningin Camilla Hamid ferðast til Marokkó til að kynnast uppruna sínum og læra að baka að marokkóskum sið.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Heimildarþættir um 40 ára sögu spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, sem hóf göngu sína árið 1986. Rætt er við fyrrverandi keppendur, spyrla og spurningahöfunda um sögu þáttanna og þróun tíðarandans og eftirminnileg augnablik eru rifjuð upp. Dagskrárgerð: Sturla Holm Skúlason.

Samantekt frá viðburðum dagsins á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu. Umsjón: Edda Sif Pálsdóttir og Gunnar Birgisson.
Dönsk leikin þáttaröð frá 2024 byggð á sönnum atburðum. Kærustuparið Iben og Alex eru hluti af samfélagi ungra anarkista sem heldur til í Ungdómshúsinu á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Þegar borgin selur trúfélagi húsið og til stendur að rýma það grípaanarkistarnir í húsinu til aðgerða. Iben og Alex átta sig á að þau hafa ólíkar hugmyndir um hvaða aðferðum skal beita til að ná sínu fram. Aðalhlutverk: Thit Aaberg, Elias Budde Christensen og Sandra Guldberg Kampp. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Leikin þáttaröð um líf og störf lögreglumanna í Chicago. Aðalhlutverk: Jason Beghe, Jesse Lee Soffer og Tracy Spiridakos. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Rómantískir dramaþættir frá 2023. Fyrir sextán árum ákváðu Alice og Jack að halda hvort í sína áttina eftir að hafa varið einni nótt saman. Hins vegar er eitthvað sem dregur þau sífellt aftur hvort að öðru. Aðalhlutverk: Domhnall Gleeson, Andrea Riseborough og Sunil Patel. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir sakamálaþættir byggðir á sönnum atburðum. Árið 1973 voru þrjár unglingsstúlkur myrtar í bænum Port Talbot í Wales en lögreglunni tókst ekki að finna morðingjann. Þrjátíu árum síðar koma fram nýjar vísbendingar og rannsóknarlögreglumaðurinn Paul Bethell er staðráðinn í að leysa málið. Aðalhlutverk: Philip Glenister og Steffan Rhodri. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Keppni á listskautum á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Keppni í íshokkí á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.