Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Grindavíkurbær hyggur á skólahald í haust en Grindavíkurnefnd leggst gegn því. Við ræðum nýútkomna rammaáætlun um endurreisn Grindavíkur og viðtökurnar sem hún hefur fengið meðal Grindvíkinga. Viðmælendur eru Árni Þór Sigurðsson, formaður Grindavíkurnefndar og Kristín María Birgisdóttir, Grindvíkingur.
Við kynnum okkur líka nýja aðferð til húsbygginga, sem nú er beitt við Sölkugötu í Mosfellsbæ. Hönnuðir aðferðarinnar binda vonir við að með henni megi byggja hús á skemmri tíma og með minni tilkostnaði.
Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmars Guðmundsson ræðir við Auði Styrkársdóttur en hún segir frá Helga bróður sínum sem veiktist mjög alvarlega á geði fyrir um hálfri öld. Helgi fékk ekki meðferð við hæfi fyrr en hann flutti til Svíþjóðar þar sem hann hefur dvalið í áratugi.
Nýir íslenskir heimildarþættir eftir Láru Zulima Ómarsdóttur. Hvernig er að búa í nánum tengslum við náttúruna? Hvað er það í náttúrunni sem kallar svo sterkt á suma? Lára kynnist viðmælendum sínum og fer með þeim á þeirra uppáhaldsstaði, þar á meðal leynistaði sem fáir þekkja. Hún sýnir svo bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard þessar einstöku náttúrugersemar, en hann sérhæfir sig í ljósmyndun á köldum slóðum. Framleiðsla: Zulima ehf.
Svandís Sverrisdóttir sleit barnsskónum í Papey og ólst þar upp hjá afa sínum. Eyjan er úti fyrir Hamarsfirði á Austurlandi og var eina byggða eyjan á austurströnd Íslands þar til hún fór í eyði fyrir nokkrum áratugum. Svandís sýnir okkur Papey, segir frá lífinu í eynni á árum áður og fer með okkur á þann stað sem hún hefur ljósmyndað oftar en nokkurn annan. Þar að auki fer bandaríski ljósmyndarinn og ævintýramaðurinn Chris Burkard með Láru út í Papey.
Þáttaröð í fjórum hlutum þar sem Eva María Jónsdóttir ferðast um landið og segir sögur af fólki og atburðum úr fortíðinni. Dagskrárgerð: Björn B. Björnsson.
Í fyrsta þætti segir Eva María frá Svarfdæla sögu og heimsækir sögustaði.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld fræðumst við um íslenskt smáforrit sem hannað er til að hjálpa fólki með fíknisjúkdóma. Við hittum hund sem eru í heimilisleit. Við kynnum okkur íþróttaverkefnið Allir með og við skoðum jökul með augum myndlistarfólks.

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Ferðaþættir í umsjá útivistarhjónanna Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall þar sem þau ferðast með fólki um ósnortna náttúru Íslands.
Við sláumst í för með hópum Íslendinga í tvær ævintýraferðir erlendis. Hin fyrri er klettagönguferð í Dólómítafjöllum á Ítalíu sem er ekki fyrir lofthrædda. Í hinni síðari er gengið á milli fjallakofa í víðernum Harðangurs í Noregi sem er ekki ferð fyrir kuldaskræfur. Í síðari hluta þáttarins klifra Jói Pé og Króli í Akrafjalli undir styrkri leiðsögn þrautreyndra klettaklifrara.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Breskir dramaþættir frá 2023. Árið 1956 flyst Roberts-fjölskyldan frá Bretlandi til Ástralíu í leit að betra lífi. Erfitt reynist að fóta sig í nýju umhverfi þar sem óvæntar áskoranir leynast á hverju strái. Aðalhlutverk: Warren Brown, Faye Marsay og Hattie Hook. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Margverðlaunuð heimildarmynd frá 2023. Gena er hinsegin listakvár frá smábæ í Rússlandi. Hún klæðist ögrandi og listrænum búningum á götum Moskvu og framkvæmir framandi gjörninga til að mótmæla meðferð á hinsegin fólki í Rússlandi Pútíns. Leikstjóri: Agniia Galdanova. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Bresk leikin þáttaröð frá 2023 um kokkinn Carly og teymið hennar sem tekst á við allar þær áskoranir sem fylgja því að reka nýjan veitingastað. Aðalhlutverk: Vinette Robinson, Izuka Hoyle og Hannah Walters. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Sex listar eru í framboði í Mosfellsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast umræðum. Þátttakendur eru Ómar Ingþórsson, Samfylkingu, Sævar Birgisson, Framsóknarflokki, Sveinn Óskar Sigurðsson, Miðflokki, Hilmar Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki, Gylfi Þór Þorsteinsson, Viðreisn og Árni Jónsson Vini Mosfellsbæ.