19:45
Kastljós
Tónleikahald á Þingvöllum, ungir kjósendur, Feneyjatvíæringurinn

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Hljómsveitin Kaleo og fleiri tónlistarmenn halda stórtónleika á Þingvöllum í sumar. Þingvellir eru þjóðgarður og á heimsminjaskrá UNESCO. Skiptar skoðanir eru á hvort vel fari á því að halda lokaðan viðburð á slíkum stað. Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins og formaður Þingvallarnefndar, og Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi formaður Þingvallanefndar, ræða málið.

Það styttist í kjördag og margir ganga að kjörborðinu í fyrsta sinn. Við tökum púlsinn á ungum kjósendum.

Við förum líka yfir sviðið á Feneyjatvíæringnum, stærstu myndlistarhátíð í heimi, sem er umdeildari í ár en ofast áður.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
Bein útsending.
,