
EM í frjálsíþróttum á Englandi.
Sænskur heimildarþáttur frá 2025. Fjallað er um skaðlegar útlitskröfur sem ungar stúlkur standa frammi fyrir. Skoðað er hvernig líkami kvenna hefur birst í dægurmenningu síðustu áratugi og hvaða áhrif samfélagsmiðlar hafa á líkamsímynd. Í þættinum er fjallað um átröskun. Hjálparsími Rauða krossins er opinn allan sólarhringinn - símanúmerið er 1717.

Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1992. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður: Oddný Eir Ævarsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast við Verkmenntaskólans á Akureyri og Menntaskólans við Hamrahlíð. Lið Verkmenntaskólans á Akureyri skipa Pétur Maack Þorsteinsson, Skafti Ingmarsson og Rúnar Sigurpálsson. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Jón Einar Jónsson, Júlíus Atlason og Jón Yngvi Jóhannsson.
Íslenskir heimildarþættir eftir Láru Zulima Ómarsdóttur. Hvernig er að búa í nánum tengslum við náttúruna? Hvað er það í náttúrunni sem kallar svo sterkt á suma? Lára kynnist viðmælendum sínum og fer með þeim á þeirra uppáhaldsstaði, þar á meðal leynistaði sem fáir þekkja. Hún sýnir svo bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard þessar einstöku náttúrugersemar, en hann sérhæfir sig í ljósmyndun á köldum slóðum. Framleiðsla: Zulima ehf.
Arndís Guðmundsdóttir býr á Bjarnastöðum við Hvítársíðu í Borgarfirði. Þar hefur fjölskylda hennar búið í meira en 140 ár. Arndís á sér uppáhaldsstað sem leynist í aldagömlu, mosavöxnu hrauni og á fáa sína líka á Íslandi. Lára fer einnig með bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard um sveitina.
Þáttaröð í umsjón Guðríðar Helgadóttur garðyrkjufræðings þar sem hún sýnir áhorfendum réttu handtökin við garðyrkjustörfin. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.
Í þessum þætti sýnir Gurrý jarðgerð úr matarafgöngum. Hún heimsækir fallegan garð á Stokkseyri og ræðir þar við Önnu Jósefsdóttur sem hefur í samvinnu við eiginmann sinn, Ingiberg Magnússon, afrekað það að koma upp fjölbreytilegum garði á þessu erfiða ræktunarsvæði.
Gurrý stingur upp matjurtargarð og setur niður kartöflur.
Að lokum setur Gurrý sumarblóm í hengikörfu og hreinsar í burt mosa sem vex í sífellu upp á milli hellna í görðum.
Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2022 og hitti landann fyrir í sínu náttúrulega umhverfi, uppi á fjöllum, úti í garði, inni í skógi og allt um kring. Umsjón: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Elsa María Guðlaugs-Drífudóttir, Þórgunnur Oddsdóttir, Sigrún Hermannsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir.

EM í sundi í Frakklandi.
Finnlands-sænskir þættir frá 2022. Vinkonurnar Tara og Malin verja sumri í sumarhúsi í sænsku sveitinni. Þar njóta þær náttúrunnar, elda mat og kryfja alls kyns málefni á borð við vináttu, líkamsímynd, átraskanir og kulnun.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.
Heimildarmynd í tveimur hlutum eftir Ágúst Guðmundsson og Jón Þór Hannesson um ævintýralegan feril Gunnars Þórðarsonar. Þroskasaga tónskálds sem aldrei fór í tónlistarskóla. Mörg vinsælustu lög síðustu áratuga eru frá Gunnari komin: Bláu augun þín, Þú og ég, Gaggó Vest, Vetrarsól, Þitt fyrsta bros og þannig mætti lengi telja. Árið 2005 voru hljóðrituð lög hans orðin 500 og síðan hefur bæst við. Á síðari árum hefur hann samið hljómsveitarverk og kórverk í klassískum stíl, enn fremur óperu sem þykir marka tímamót í íslenskri tónlistarsögu.
Mörg laga Gunnars Þórðarsonar eru orðin sígild í hugum Íslendinga. Fullyrða má að ekkert annað tónskáld eigi jafn mörg og fjölbreytt lög á sínum lagalista. Á síðari árum hafa komið frá honum tónsmíðar í sígildu formi, m.a. kórverk fyrir einsöngvara og sinfóníuhljómsveit. Óperan Ragnheiður kom í kjölfarið og sló í gegn jafnt hjá almenningi sem gagnrýnendum.
Danskir spennuþættir fyrir alla fjölskylduna. Romeo og Holly komast yfir tímavél sem flytur þau aftur til miðalda. Þar hitta þau unga aðalsmanninn Laurentius sem vill svo til að er forfaðir Hollyar. Saman flækjast þau í örlagaríka atburðarás sem gæti kostað þau lífið. Þættirnir eru sjálfstætt framhald jóladagatalsins Tímaflakksins. Aðalhlutverk: Julian Brix, Lærke Krabbe De Waal og Caspar Phillipson.

Rómantísk gamanmynd frá 2016 um unglingsdrenginn Conor sem elst upp í Dublin á níunda áratugnum. Hann á erfitt með að aðlagast nýjum skóla og stofnar hljómsveit í von um að falla í hópinn og heilla stúlku sem hann er hrifinn af. Myndin var tilnefnd til Golden Globe-verðlauna sem besta gamanmyndin. Leikstjóri: John Carney. Aðalhlutverk: Ferdia Walsh-Peelo, Aidan Gillen og Maria Doyle Kennedy.
Íslensk, leikin þáttaröð um bráðalækninn Kristínu sem flytur með unglingsdóttur sinni heim til foreldra sinna í lítið sjávarþorp eftir framhjáhald eiginmannsins. Kristín, sem er raunsæ og jarðbundin, kemst fljótt að því að hún fer langt út fyrir þægindarammann í samskiptum við miðilinn móður sína og neyðist til að horfast í augu við drauga fortíðar. Leikstjóri: Eva Sigurðardóttir. Aðalhlutverk: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Katla Njálsdóttir og Jói Jóhannsson. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna.
Læknaritarinn á heilsugæslunni, sem hefur nýtt stöðu sína um áraraðir og selt grasalyf, hundsar bann Kristínar við því með alvarlegum afleiðingum. Á sama tíma stigmagnast vandamálin í einkalífi Kristínar.

Tónleika- og viðtalsþáttur þar sem farið er yfir 35 ára sögu hljómsveitarinnar Síðan skein sól. Í þættinum er sýnt frá afmælistónleikum sem haldnir voru í Háskólabíói í október 2022. Hljómsveitina skipa: Helgi Björnsson, Eyjólfur Jóhannsson, Hrafn Thoroddssen, Ingólfur Sigurðsson, Jakob Smári Magnússon og Stefán Már Magnússon. Stjórn upptöku: Þór Freysson.


Fjórða serían af Hönnunarstirnunum. Nico og Andrés eru mættir einu sinni enn með ný og skemmtileg verkefni og nýja keppendur.
Hvað gerist þegar besta vinkonan byrjar að hanga með einhverjum öðrum? Saga um vináttu sem rofnar og breytist. Þáttaröðin er á sænsku með íslenskum texta.
Skemmtileg verslunarferð endar ekki eins og Olivia bjóst við. Hefur Alexa aftur náð taki á Ellu?
Bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga. Árið 1997 hurfu fjórir krakkar úr Silfruskógi. Tuttugu og þremur árum seinna ákveður strákur einn að komast að því hvað í raun og veru gerðist í skóginum þennan örlagaríka dag.
Á meðan Drekafluga og Bea reyna átta sig á vandræðum sínum, fær Meg hjálp frá vinum sínum Fin & Alice þegar þegar hún fer að fá óumbeðna athygli utan búðanna.

EM í frjálsíþróttum á Englandi.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Icelandic drama series about Kristín, an emergency doctor who moves with her teenage daughter back to her parents' home in a small fishing village, following her own husband's affair. Kristín, who is grounded and rational, quickly realises she is out of her comfort zone communicating with her mother, a medium, and finds herself forced to look the ghosts of her past directly in the eye. Director: Eva Sigurðardóttir. Starring: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Katla Njálsdóttir, and Jói Jóhannsson. Not suitable for young children.
The secretary at the healthcare centre, who has used their position for years to sell alternative remedies, reject's Kristín's ban on the practice, with severe consequences. At the same time, the problems in Kristín's private life mount up.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.