Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Bráðamóttaka Landspítalans er yfirfull og ástandið aldrei verið verra að mati starfsfólks. Átta starfsmenn greindust með berklasmit í byrjun árs og í febrúar sendu stjórnendur spítalans heilbrigðisráðherra minnisblað um hversu alvarleg staðan væri orðin. Hvernig ætlar heilbrigðisráðherra að bregðast við stöðunni? Gestur Kastljós er Alma Möller heilbrigðisráðherra.
Stór hópur einhverfra einstaklinga er fastur í viðjum vanvirkni og óskýrar kröfur á vinnumarkaði geta reynst þeim útilokandi. Ung kona sér eftir úrræðinu Janusi endurhæfingu sem reyndist henni vel en því var lokað síðasta sumar.
