Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Tugum erlendra fanga hefur verið sleppt snemma úr fangelsi, þeim vísað úr landi og meinuð endurkoma til landsins. Þar á meðal er morðingi, sem hlaut 16 ára dóm en sleppur út eftir rúmlega fimm. Þetta er gert á grundvelli bráðabirgðalaga með það að markmiði að fjölga plássum í fangelsum á Íslandi. Aðferðafræðin er umdeild og vekur spurningar um jafnræði og skilaboð sem þetta kann að senda til erlendra glæpahópa. Kastljós ræðir við Margréti Valdimarsdóttur, afbrotafræðing, og í framhaldinu þingmennina Grím Grímsson og Sigríði Andersen, sem hafa ólíka sýn á málið.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Fólkið og fyrirtækin í landinu velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. En önnur verkefni bíða líka; forsendur kjarasamninga eru brostnar og óvíst hvernig megi berja í brestina svo samningarnir haldi. Þjóðaratkvæðagreiðslan hefur líka vakið þjóðina til umhugsunar um fullveldi sitt og sambandið við umheiminn.
Gestir þáttarins eru Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands og sagnfræðingur, Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims hf., Halla Gunnarsdóttir formaður VR stéttarfélags og Sveinn Sölvason forstjóri Emblu Medical/Össurar.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Stuttir þættir þar sem þátttakendur og gestir deila frásögnum úr 50 ára sögu Listahátíðar í Reykjavík.
María Gunnlaugsdóttir, listahátíðargestur og þátttakandi segir frá Asparfelli og upplifun af Listahátíð í gegnum útvarpið. Þór Elís Pálsson og Kristján Ingi Einarsson segja frá Led Zeppelin.
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1992. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður: Oddný Eir Ævarsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri í úrslitum. Lið Menntaskólans á Akureyri skipa Finnur Friðriksson, Magnús Teitsson og Jón Pálmi Óskarsson. Lið Verkmenntaskólans á Akureyri skipa Pétur Maack Þorsteinsson, Skafti Ingimarsson og Rúnar Sigurpálsson.
Ebba Guðný sýnir áhorfendum hversu auðvelt það getur verið að elda hollan og næringarríkan mat úr góðu hráefni. Matreiðsluþáttur fyrir alla fjölskylduna með skemmtilegu fræðsluívafi. Dagskrárgerð: Sævar Sigurðsson. Framleiðandi: Anna Vigdís Gísladóttir fyrir Saga Film.
Í þessum þætti útbýr Ebba Guðný pítsu með ofnbökuðu grænmeti, lífræna jógúrt með múslí, bláberjamúffur og bláberja-chiagraut. Henni til aðstoðar er sonur hennar, Hafliði Hafþórsson.

Vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Þáttaröð í sex hlutum þar sem fjallað er um sameiginlegar minningar íslensku þjóðarinnar á léttan og nýstárlegan hátt. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson leggjast í fullkomlega óvísindalega mannfræðirannsókn til að reyna að skilja íslensku þjóðina betur. Að þessu sinni skoða þau ýmsa þætti í íslensku mannlífi sem flestir þekkja. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Í fyrsta þætti fjalla Bergsson og Blöndal um hina íslensku húsmóður. Hver var uppskriftin að hinni fullkomnu húsmóður og hvaða kunnátta var nauðsynleg? Skipti Hagkaupssloppurinn einhverju máli?
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rýnt í viðhorf íslensku þjóðarinnar til Evrópusambandsins með stjórnmálasálfræðingnum Huldu Þórisdóttur og Hafsteini Einarssyni stjórnmálafræðingi. Hvernig þróast afstaða þjóðar í tímans rás og hvernig fer fólk að því að móta sér skoðun?
Einnig fjallað um spænska listamanninn Juan Arctic sem hefur sett svip sinn á borg og bæi um Ísland með útilistaverkum á ýmsum óvæntum stöðum.
Heimildarþáttaröð þar sem sveppir á Íslandi eru skoðaðir frá sjónarhorni vísinda, menningar, fagurfræði og sjálfbærni. Dagskrárgerð: Anna Þóra Steinþórsdóttir. Umsjón: Erna Kanema Mashinkila.
Fjallað er um hvernig sveppir og afurðir úr svepparíkinu geta stuðlað að umbótum í umhverfismálum. Fylgst er með nýsköpunarfyrirtækinu Svepparíkið þar sem Unnur Kolka Leifsdóttir stundar sjálfbæra ræktun í svokölluðu Zero Waste-kerfi. Sigrún Thorlacius fjallar um hvernig nýta má eiginleika svepparíkisins til að brjóta niður mengandi úrgang sem víða má finna í jarðveginum, t.d. á urðunarstöðum. Neuza Vallades arkitekt og doktorsnemi í umhverfisverkfræði talar um möguleikana á nýtingu efna úr sveppum í byggingariðnaði.
Norskir heimildarþættir frá 2024. Hópur Norðmanna stefnir á að komast með nýstofnað landslið sitt í fótbolta á Heimsleika dvergvaxinna. Markmið liðsmanna er að vinna bug á fordómum í garð þeirra og sýna að hæðin sé engin hindrun þegar kemur að íþróttaiðkun. Undir stjórn þjálfarans Ole Martin Årst, fyrrverandi atvinnumanns í fótbolta, stefnir liðið á toppinn.
Dönsk glæpaþáttaröð frá 2026. Þegar lögreglunemi skýtur ungan mann við handtöku vakna upp spurningar um valdbeitingu og þjálfun lögreglunnar. Þrýstingur á nýjan skólastjóra lögregluskólans eykst og bæði nemendur og starfsfólk þurfa að horfast í augu við þá miklu ábyrgð sem fylgir því að klæðast einkennisbúningi lögreglunnar. Aðalhlutverk: Marco Ilsø, Clara Rosager og Lene Maria Christensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Lögreglumaðurinn Andri Ólafsson snýr aftur í annarri þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Reynt er að ráða iðnaðarráðherra af dögum á Austurvelli og Andra er falið að stýra rannsókn málsins sem leiðir hann á kunnugar slóðir norður á landi. Ýmis leyndarmál leynast í sveitunum í kring og þegar starfsmaður jarðvarmavirkjunar finnst myrtur er ljóst að málið er umfangsmeira en það virtist í fyrstu. Leikstjórn: Baltasar Kormákur, Börkur Sigþórsson, Ugla Hauksdóttir og Óskar Þór Axelsson. Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson. Framleiðsla: RVK Studios. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Víkingur þarf að horfast í augu við afleiðingar gærkvöldsins. Ebo frá Ghana, hefur mátt þola ýmislegt síðan hann réð sig til vinnu á Íslandi. Við fordóma og kynþáttahatur hafa nú bæst hótanir frá hinum pólskættaða Pawel.
Fjórða og síðasta þáttaröðin um ítölsku vinkonurnar Elenu og Lilu. Þættirnir eru byggðir á Napólí-sögum rithöfundarins Elenu Ferrante, sem farið hafa sigurför um heiminn. Vinkonurnar eru á fullorðinsaldri og lifa ólíku lífi en vináttan heldur enn. Aðalhlutverk: Alba Rohrwacher, Irene Maiorino og Fabrizio Gifuni. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Leiknir norskir þættir byggðir á sönnum atburðum. Vinirnir Benjamin og Elias eru 15 ára og horfa spenntir til framtíðar. Einn örlagaríkan janúardag árið 2001 breytir skelfilegur atburður öllu. Aðalhlutverk: Sam Ashraf, Emil Stenseth, Torbjørn Aamodt og Lee Boardman. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.