Danskir þættir sem fjalla um einmanaleika hjá miðaldra fólki. Í þáttunum er rætt við fjóra einstaklinga sem upplifa sig einmana, þrátt fyrir að allt líti út fyrir að ganga vel hjá þeim út á við. Í þáttunum fara þau hvert sínar leiðir í tilraunum til að brjótast út úr einmanaleikanum.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Silfrið verður á sunnudagskvöldi í þessari viku vegna sveitarstjórnarkosninga.
Oddvitar þeirra sjö framboða sem náðu kjöri í Reykjavík fara yfir kosningaúrslitin og ræða hugsanlegar meirihlutamyndanir.
Spurningakeppni sveitarfélaga frá 2018. Þátttakendur að þessu sinni eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komust í úrslit árin á undan eða hafa oftast komist nálægt því. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundur og dómari er Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Skýr hægri sveifla var í úrslitum kosninganna og Sjálfstæðisflokkurinn er með pálmann í höndunum í Reykjavík. En hvað segja niðurstöður kosninganna okkur um stöðu flokkanna á landsvísu? Og við hverju má búast á næstu misserum? Gestir Kastljóss eru Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar og Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Íslenskur brúðarbúningur frá átjándu öld sem á sér mikla og dramatíska sögu er nú til sýnis á Þjóðminjasafninu. Sýningarstjóri segir búninginn vera hið heilaga gral íslenskrar menningarsögu. Við kynnum okkur söguna í lok þáttarins.
Íslenskir og erlendir jötnar reyndu með sér í æsispennandi keppni, þegar Aflraunamótið Víkingurinn var haldið 2025. Nú var keppt Vestfjörðum, þar sem einnig var litast um í lífi, starfi, listum og sögu heimamanna. Umsjón: Samúel Örn Erlingsson. Dagskrárgerð: Óskar Þór Nikulásson.
Sænsk heimildarþáttaröð frá 2025 sem varpar ljósi á lífið í Svíþjóð á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Í tilefni af því að 80 ár voru frá stríðslokum deilir sænska þjóðin persónulegum minningum úr stríðinu í formi bréfa, kvikmynda, ljósmynda og dagbóka. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Sænskir hryllingsþættir frá 2025 byggðir á samnefndri skáldsögu eftir Mats Strandberg. Eitthvað illt leynist um borð í ferju á leið milli Svíþjóðar og Finnlands og þegar fjarskiptasamband rofnar um miðja nótt er engin undankomuleið. Aðalhlutverk: Tuppence Middleton, Kolbjörn Skarsgård, Björn Bengtsson og Jessica Grabowsky. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Önnur þáttaröð þessara dönsku sakamálaþátta. Lögreglumaðurinn Rolf Larsen kemst á snoðir um mansalshring þegar 19 Víetnamar finnast myrtir í farmrými vöruflutningabíls. Aðalhlutverk: Anders W. Berthelsen, Olivia Joof Lewerissa og Zofia Wichlacz. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Norsk heimildarþáttaröð um Noman, sem er múslimi af pakistönskum uppruna og samkynhneigður. Hann leitar svara við því hvers vegna sumir hata fólk eins og hann og hvers vegna hann skammast sín oft fyrir að vera sá sem hann er.