
Serían gerist í litríkum og súrsætum skrímsla heimi þar sem fjölbreytt skrímsli búa í sátt og sæti. Í hverjum þætti kynnumst við nýju skrímsli sem býr yfir vægast sagt sérstökum eiginleikum. Kíkjum við og sjáum hvað setur, kannski við getum kynnst þeim aðeins betur.
Finni Krumpa prumpuskrímsli fólk í vanda, tekur hún til sinna handa. Hún sturtar í sig nokkrum rúsínum og þá þýtur hún prumpandi af stað. Hún flýgur um allt, hátt og lágt með prumpuský í eftirdragi. Best að halda niðri í sér andanum skyldi hún fljúga fram hjá!

Skemmtilegir þættir um hina ástsælu Múmínálfa Tove Jansson og ævintýri þeirra.
Jóga fyrir alla krakka í ævintýraheimi með dýrum og náttúru.
Ævintýrajóga hvetur börn til hreyfingar og að vera meðvituð um líkama sinn og líðan. Það gefur þeim verkfæri sem auðveldar þeim að líða vel í eigin líkama og takast á við daglegt líf. Jógakennari: Þóra Rós Guðbjartsdóttir. Framleiðsla: Erla Hrund Hafsteinsdóttir.
Við getum alltaf gefið okkur sól í hjarta, gefið öðrum og okkur sjálfum smá kærleika og hlýju.
Íslensk þáttaröð fyrir alla fjölskylduna. Hanna og Baldur eru ósköp venjulegir krakkar í Reykjavík. Lífið tekur stakkaskiptum þegar foreldrar þeirra ákveða að skilja. Leikstjóri: Bragi Þór Hinriksson.Leikarar: Andrea Birna Guðmundsdóttir, Lúkas Emil Johansen, Svandís Dóra Einarsdóttir og Jóhannes Haukur Jóhannesson. Framleiðsla: Hreyfimyndasmiðjan.
Mamma og pabbi Baldurs og Hönnu hafa sett húsið á sölu. Þrátt fyrir ráðabrugg systkinanna virðast þau ekki ætla að hætta við að skilja.
Dönsk heimildarþáttaröð um fimm manna fjölskyldu sem flytur í frumskóga Níkaragva. Fjölskyldufaðirinn Glenn býst við að innan fimm ára verði heimshrun og þá verði fólk að geta ræktað eigin mat og séð sér fyrir rafmagni og vatni. Hann vill að börnin þrjú læri að takast á við lífið á nýjum forsendum en þau eiga erfitt með að yfirgefa öruggan hversdagsleikann heima í Danmörku.

Kanadískir heimildarþættir þar sem fylgst er með uppsetningu kanadíska ballettsins á Svanavatninu eftir Tsjaíkovskí undir stjórn ballettstjörnunnar Karenar Kain.

Stuttir heimildarþættir þar sem við fylgjumst með fólki byggja draumagufubaðið sitt.
Íslensk heimildarþáttaröð í fjórum hlutum um mannskæð snjóflóð sem féllu á byggðina í Norðfirði 20. desember 1974 og sópuðu burt öllu sem á vegi þeirra varð.
Í lokaþættinum er fjallað um uppbygginguna á Norðfirði, samstöðu bæjarbúa, gerð snjóflóðavarnargarða, eftirmál flóðanna og áhrifin sem þau höfðu á fólkið á staðnum.
Góð ráð og æfingar sem tilvalið er að gera heima. Íris Rut Garðarsdóttir sjúkraþjálfari hefur umsjón með leikfiminni.
Styrktaræfingar fyrir handleggi. Sitjandi æfingar. Gott að hafa létt lóð eða vatnsflösku við hendina.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Fréttaskýringaþátturinn Þetta helst á Rás 1 fjallaði í dag um fósturheimilið á Gauksstöðum í Garði á Reykjanesi, sem lokað var árið 2019 eftir að hafa verið starfrækt í áratug. Rætt við Lilju Margréti Olsen, lögmann og réttargæslumann rúmlega 20 einstaklinga sem vistaðir voru á heimilinu og greint hafa frá ofbeldi þar.
Sérfræðingur við herrannsóknardeild Kaupmannahafnarháskóla segir að Bandaríkin hafa enn áhuga á yfirráðum á Grænlandi en samningaviðræðum um fyrirkomulagið sæe haldið mjög leyndum. Ingólfur Bjarni Sigfússon ræðir við Lise Wiederholt Christensen.
Það er svalt að vera nörd - eða það segir allavegana yfirgrúskarinn Júlíus Júlíusson sem rekur safnarabúð á Dalvík. Sigurður Þorri heimsótti Safnabúð Júlla.

Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Karl Ágúst, Pálmi, Sigurður, Randver og Örn bregða á leik sprellfjörugir að vanda. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.

Íslenskir heimildarþættir í leikstjórn Péturs Fjeldsted Einarssonar. Fjallað er um velsældarhagkerfið þar sem áhersla er lögð á framfarir og þróun út frá heilsu fólks og jarðar. Framleiðsla: Elín Hirst, Pétur Fjeldsted Einarsson og embætti landlæknis.

Ævintýri Tulipop er skemmtileg teiknimyndaþáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop.
Í þáttaröðinni er fylgst með vinunum Fredda, sveppa-systkinunum Búa og Gló, Maddý og ekki má gleyma Herra Barra sem er elstur og vitrastur allra á Tulipop. Þau eru öll afar ólík bæði hvað útlit og skapgerð varðar. Á Tulipop búa sterkar kvenpersónur og staðalímyndir fyrirfinnast ekki. Enginn er fullkominn, öllum verður einhvern tíma á í messunni en það sem mestu máli skiptir er kærleikurinn og vináttan. Í hverjum þætti lenda aðalpersónurnar í spennandi ævintýrum og eignast nýja vini.
Ævintýri Tulipop sækir innblástur sinn í íslenska náttúru, sem leikur stórt hlutverk í þáttaröðinni. Virðing fyrir náttúrunni er í fyrirrúmi og markmiðið er að miðla jákvæðum skilaboðum og gleði til barna á öllum aldri.
Vinirnir eru í feluleik í Leyniskógi þar sem allt er á kafi í snjó. Eina vandamálið er að Freddi kann ekki að fela sig. En viti menn, þegar Freddi gerir lokatilraun til þess að fela sig bak við stórt tré fellur á hann snjódyngja. Hann hefur fundið hinn fullkomina felustað! Nú þarf hann bara að reyna hafa hljótt um sig og standa grafkyrr...

Róbert og hressu hvolparnir í Hvolpasveitinni eru komin aftur og takast á við ný verkefni og nýja þorpara eins og þeim einum er lagið.

Þriðja þáttaröðin um hina vinsælu Blæju og Hælbein fjölskylduna. Daglegt líf fjölskyldunnar gengur sinn vanagang, en hins vegar er enginn dagur eins þegar Blæja og Bára eiga í hlut.

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist. Saman njóta þau tónanna sem óma um Hljómbæ.

Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.

Í þessari þáttaröð skoðar fólk með þroskahömlun málefni líðandi stundar með sínum augum og spyr þeirra spurninga sem því eru hugleiknar. Þættir frá 2013. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Kveikur er fréttaskýringaþáttur með áherslu á rannsóknarblaðamennsku. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Sunna Karen Sigurþórsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson.
Börn með ógreinda heyrnarskerðingu eru talin skipta tugum. Ógreind heyrnarskerðing getur leitt til félagslegrar einangrunar og haft neikvæð áhrif á námsgetu barna. Ekki hefur verið skimað fyrir heyrnarskerðingu við upphaf grunnskólagöngu í fjórtán ár.

Rithöfundurinn og stærðfræðingurinn Hannah Fry kynnir sér nýjustu tæki og tól í tækniheiminum og skoðar söguna á bak við uppfinningarnar.
Bresk glæpaþáttaröð frá 2025 byggð á sænskum metsölubókum eftir Erik Axl Sund. Röð dularfullra morða á ungum mönnum í Bristol leiðir saman rannsóknarlögreglukonuna Jeanette Kilburn og sálfræðinginn Sophiu Craven. Rannsókn málsins dregur þær á hættulegar slóðir ofbeldis og morða. Aðalhlutverk: Eve Myles, Katherine Kelly og Clara Rugaard. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Finnsk heimildarþáttaröð þar sem rannsóknarblaðamaðurinn Riku Rantala rannsakar örlög ungra manna sem hurfu um borð í ferju milli Svíþjóðar og Finnlands. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Heimildarmynd um parið Mariu og Nik sem lifa sjálfbæru lífi ásamt börnum sínum fjórum á sveitabæ í óbyggðum Noregs þar sem frelsið ræður ríkjum. Veröld þeirra hrynur Þegar Maria fellur frá. Nik og börnin neyðast til að flytja og reyna að aðlagast kröfum nútímasamfélags. Leikstjóri: Silje Evensmo Jacobsen.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.