Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmar ræðir við Vigni Daðason sem segist vera heppin að vera á lífi eftir stutta en harða baráttu síðustu mánuði við krabbamein. Hann hefur einnig glímt við alkóhólisma og segir að báðir sjúkdómarnir hafi mótað hann mikið. Vignir ræðir reynslu sína og lífssýn auk þess sem hann fer yfir tónlistarferil sinn, sem hann gefur reyndar falleinkunn.
Fróðlegur og skemmtilegur þáttur um fólk sem á rætur um allan heim, en hefur af ólíkum ástæðum sest að á Íslandi. Næstum því einn af hverjum tíu íbúum Íslands er af erlendum uppruna. Sumir komu hingað af því að þá langaði til þess, aðrir áttu fáa aðra kosti. Einhverjir ætluðu bara rétt aðeins að staldra við, en ílentust óvart á lítilli eyju í norðri. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Ragnheiður Thorsteinsson.
Í þessum síðasta þætti Róta er fjallað um birtingarmyndir innflytjenda í fjölmiðlum. Við förum í fjölskylduboð hjá bandarískri ömmu sem býr til ekta New York-lasagna og heyrum sögu Anups Gurung, Nepala sem hefur búið í Skagafirði árum saman. Hann komst fyrst á snoðir um Ísland eftir að hann heyrði lag með Pöpunum heima í Kathmandu.

Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
Orðbragð er skemmtiþáttur þar sem Bragi Valdimar Skúlason og Brynja Þorgeirsdóttir snúa upp á íslenska tungumálið, teygja það, toga og umfaðma, knúsa og blása í það lífi. Umsjónarmenn eru Bragi Valdimar Skúlason og Brynja Þorgeirsdóttir. Dagskrárgerð: Konráð Pálmason.
Í fyrsta þættinum skoðum við hvernig best er að smíða ný orð, eins og „togleðurshringur“ og „sími“. Misheppnuð nýyrði, fyrirtaks nýyrði og snjöllustu orðasmiðir landsins verða til viðtals. Tónlistarmaðurinn Matthías Matthíasson er gæddur einstökum hæfileika; hann getur talað afturábak. Við leggjum fyrir hann próf. Í sms skilaboðum og í gegnum netið fara samskipti stundum fram með ansi hreint merkilegum styttingum og skammstöfunum, eins og „ves“ og „gg“. Við ræðum við þrjá unga sérfræðinga sem túlka það helsta. Tíu furðulegustu götunöfnin á Íslandi verða valin í þættinum, og einu ofnotuðu og útjöskuðu orði verður lógað. Matthías Matthíasson syngur heilt lag afturábak fyrir okkur.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Misvísandi yfirlýsingar á leiðtogafundi Nató

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Danskir heimildarþættir frá 2025. Anne Hjernøe og Anders Agger heimsækja Bútan, lítið búddískt ríki í suðausturhluta Himalajafjalla. Þar eru hamingja, vellíðan og menningargildi höfð í fyrirrúmi fremur en hagvöxtur.

Bresk gamanþáttaröð frá 2026 eftir John Morton. Hugh Bonneville mætir til leiks sem Ian Fletcher í aðdraganda heimsmeistaramótsins í fótbolta sem fram fer í Norður-Ameríku í sumar. Aðalhlutverk: Hugh Bonneville, Jessica Hynes og Karl Theobald.

Sænsk leikin þáttaröð frá 2026. Lögfræðingar á lögmannsstofunni Matsson og Moradi takast á við stór og flókin mál þar sem mikið er í húfi. Nýliðinn Tilde stígur sín fyrstu skref inn í þennan harða og miskunnarlausa heim þar sem mörkin á milli réttlætis og góðs árangurs verða sífellt óljósari. Aðalhlutverk: Arvin Kananian, Björn Bengtsson og Kit Walker Johansson. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Heimildarmynd frá 2019 um dansarann Lil' Buck sem varði uppvextinum dansandi um götur Memphis-borgar. Þegar myndband af honum að dansa við Svaninn eftir Camille Saint-Saëns við undirleik sellóleikarans Yo-Yo Ma fór í dreifingu öðlaðist hann heimsfrægð. Leikstjóri: Louis Wallecan.

Önnur þáttaröð þessara bresku spennuþátta um rannsóknarlögreglukonuna Rachitu Ray. Þegar hjúkrunarfræðingur og foringi alræmdra glæpasamtaka eru myrt í skotárás við sjúkrahús í Birmingham tekur Ray við rannsókn málsins. Í fyrstu lítur þetta út fyrir að vera átök glæpagengja en eftir því sem rannsókninni vindur áfram kemur í ljós að málið er mun margslungnara. Aðalhlutverk: Parminder Nagra, Gemma Whelan, Patrick Baladi og Jan Puleston-Davies. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Misvísandi yfirlýsingar á leiðtogafundi Nató