
Ásgrímur Sverrisson kvikmyndagerðarmaður ræðir við íslenska kvikmyndagerðarmenn um myndir þeirra. Brugðið er upp völdum atriðum úr myndunum og rætt um hugmyndirnar sem að baki þeim liggja.
Í þessum þætti er rætt við Pál Steingrímsson kvikmyndastjóra.
Páll var kominn á fimmtugsaldur þegar hann útskrifaðist frá kvikmyndadeild New York University árið 1972. Hann stofnaði síðan kvikmyndafélagið Kvik sem hann rak um árabil ásamt félögum sínum Ernst Kettler og Ásgeiri Long. Fyrsta verkefni þeirra var heimildamyndin Eldeyjan, sem fjallaði um Vestmannaeyjagosið 1973, en fyrirtækið varð síðan umfangsmikið á sviði auglýsingamynda fyrir sjónvarp á áttunda áratug síðustu aldar og fram á þann níunda.
Páll hefur frá upphafi kvikmyndaferils síns unnið jafnt og þétt að heimildamyndum með áherslu á náttúru, dýralíf og umhverfi auk fræðslumynda fyrir ýmsa opinbera aðila. Alls fylla myndir hans rúmlega hálft hundrað og hafa margar þeirra verið sýndar og verðlaunaðar um víða veröld.
Páll hlaut heiðursverðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar árið 2004 fyrir hinn langa og farsæla feril sinn á sviði heimildamynda.

24 stærstu bæjarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
Að þessu sinni takast á lið Hafnarfjarðar og Hornafjarðar. Lið Hafnarfjarðar skipa Gísli Ásgeirsson, Silja Úlfarsdóttir og Elíza Lífdís Óskarsdóttir en fyrir Hornafjörð keppa Kristín Hermannsdóttir, Sigurður Hannesson og Þórgunnur Torfadóttir.

Heimildarþáttaröð frá 1990 sem fjallar um hernám Breta á Íslandi og varpar ljósi á íslenskt þjóðfélag við upphaf og á árum síðari heimsstyrjaldar. Umsjónarmaður er Helgi H. Jónsson og um dagskrárgerð sá Anna Heiður Oddsdóttir.
Í sjötta þætti er rætt um stríðslokin, stöðu Þjóverja síðustu mánuðina og þjóðfélagsbreytingar á Íslandi eftir stríðið.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Herdís Anna Þorvaldsdóttir er gestur Sigurlaugar í Okkar á milli. Hún varð fyrir lífshættulegri hnífaárás á heimili sínu.
Þrátt fyrir það er hún ekki hrædd við neitt og ætlar að nýta auka lífið og fá sem mest út úr því.
Íslenskur heimildarþáttur um hvernig hægt er að nýta skapandi tónlistarmiðlun til að hjálpa fólki til virkni í samfélaginu. Í þættinum fylgjumst við með stofnun Kodu Samfóníu, 35 manna hljómsveitar sem samanstendur af fólki sem hefur leitað sér hjálpar hjá starfsendurhæfingarstöðvum, hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands og nemendum og starfsfólki við skapandi tónlistarmiðlun í Listaháskóla Íslands. Dagskrárgerð: Anna Hildur Hildibrandsdóttir.

Arkitektinn Charlotte Thiis-Evensen heimsækir starfssystkini sín og sýnir áhorfendum hvernig þau búa.

Litla Ló býr með Kisu, bróður sínum Húgó, foreldrum sínum - og líka álfinum Búa sem býr í holu í veggnum. Búi er algjör töframaður og á hverjum degi býður hann Litlu Ló og Kisu í nýtt ævintýri úti í náttúrunni.

Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.

Vandaðir þættir þar sem hugur og skynjun barna eru örvuð á sjónrænan hátt án orða.