Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Ríkisstjórnin kynnti fyrir helgi tímabundnar efnahagsaðgerðir til að ná niður verðbólgu. Duga þessar aðgerðir til og hvað þarf að gera til að ná tökum á efnahagsástandinu? Gestir Kastljós eru Henný Hinz aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands og GylfI Magnússon, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra.
Þýski þingmaðurinn Tilman Kuban fer fyrir Evrópumálum í flokki Merz kanslara Þýskalands. Hann var hérlendis fyrir nokkrum dögum og sagðist í viðtali við Ingólf Bjarna viss um að hægt væri að ná málamiðlun í sjávarútvegsmálum sem bæði sjómenn og útvegsfyrirtæki gætu unað við.
Þrír íslenskir leikarar með ólíkar reynslusögur sameina krafta sína í verkinu Gæðablóð í Þjóðleikhúsinu. Við lræðum við tríóið og leikstjóra verksins.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er í viðtali í fyrri hluta þáttarins um stöðu efnahagsmála.
Í seinni hlutanum höldum við áfram að ræða við oddvita framboða í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík.
Gestir:
Silja Sóley Birgisdóttir, Sósíalistaflokkur Íslands
Ingimar Þór Friðriksson, Góðan daginn framboðið
Sigfús Aðalsteinsson, Okkar borg.
Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Ævintýri Tulipop er skemmtileg teiknimyndaþáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop.
Í þáttaröðinni er fylgst með vinunum Fredda, sveppa-systkinunum Búa og Gló, Maddý og ekki má gleyma Herra Barra sem er elstur og vitrastur allra á Tulipop. Þau eru öll afar ólík bæði hvað útlit og skapgerð varðar. Á Tulipop búa sterkar kvenpersónur og staðalímyndir fyrirfinnast ekki. Enginn er fullkominn, öllum verður einhvern tíma á í messunni en það sem mestu máli skiptir er kærleikurinn og vináttan. Í hverjum þætti lenda aðalpersónurnar í spennandi ævintýrum og eignast nýja vini.
Ævintýri Tulipop sækir innblástur sinn í íslenska náttúru, sem leikur stórt hlutverk í þáttaröðinni. Virðing fyrir náttúrunni er í fyrirrúmi og markmiðið er að miðla jákvæðum skilaboðum og gleði til barna á öllum aldri.
Litlir gosbrunnar byrja að gusast upp á víð og dreif í garðinum hans Búa og þegar betur er að gáð sést að ekkert vatn rennur lengur í stóra fossinum. Vinirnir ákveða að rannsaka málið og komast að því að tröllið Loðgeir hefur orðið að steini og stíflað vatnsuppsprettuna. Það eina sem getur breytt tröllinu aftur í sitt fyrra horf er tröllasólsteinn. Herra Barri kemur þeim til bjargar og Búi býður öllum heim í pönnukökur....hver vissi að tröllum þættu pönnukökur svona góðar?
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Ísland komið á EM kvenna í handbolta 2. Verzló sigraði Gettu betur 3. Bókaverðlaun barnanna og kosning fyrir SÖGUR. Ljúkum þættinum á ævintýralegri bílferð!
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Grindavíkurbær hyggur á skólahald í haust en Grindavíkurnefnd leggst gegn því. Við ræðum nýútkomna rammaáætlun um endurreisn Grindavíkur og viðtökurnar sem hún hefur fengið meðal Grindvíkinga. Viðmælendur eru Árni Þór Sigurðsson, formaður Grindavíkurnefndar og Kristín María Birgisdóttir, Grindvíkingur.
Við kynnum okkur líka nýja aðferð til húsbygginga, sem nú er beitt við Sölkugötu í Mosfellsbæ. Hönnuðir aðferðarinnar binda vonir við að með henni megi byggja hús á skemmri tíma og með minni tilkostnaði.
Kveikur er fréttaskýringaþáttur með áherslu á rannsóknarblaðamennsku. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Sunna Karen Sigurþórsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson.
Þrátt fyrir að stjórnvöld eyði milljörðum ár hvert í stríðið gegn fíkniefnum sér ekki högg á vatni og framboðið hefur aldrei verið meira. Kókaín flæðir inn til landsins í áður óséðu magni og sífellt fleiri reykja efnið, sem þá kallast krakk, með alvarlegum afleiðingum.
Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Sex listar eru í framboði í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast umræðum í Hafnarborg. Þáttakendur eru Einar Geir Þorsteinsson, Miðflokki, Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, Vinstrinu, Guðmundur Árni Stefánsson, Samfylkingu, Karólína Helga Símonardóttir, Viðreisn, Orri Björnsson, Sjálfstæðisflokki og Valdimar Víðsson, Framsóknarflokki,

Finnsk heimildarþáttaröð þar sem rannsóknarblaðamaðurinn Riku Rantala rannsakar örlög ungra manna sem hurfu um borð í ferju milli Svíþjóðar og Finnlands. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Önnur þáttaröð þessara bresku sakamálaþátta. Deilur milli glæpagengja valda glundroða á götum Belfast og nýliðum innan lögreglunnar er ýtt út á ystu nöf bæði í starfi og einkalífi. Aðalhlutverk: Nathan Braniff, Sian Brooke og Katherina Devlin. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.