Stuttir heimildarþættir frá Noregi um tilfinningaflækjur Ariane, ungrar norskrar konu sem er dökk á hörund og með krullað hár. Á að leyfa afróinu að njóta sín? Má annað fólk koma við hárið? Á hún að vera stolt af krullunum eða bara alls ekki?
Bein útsending frá keppni í Skólahreysti. Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Umsjón: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson. Stjórn útsendingar: Sturla Skúlason.
Matreiðsluþættir með Kristni Guðmundssyni. Eftir að Kristinn varð pabbi fór hann að elda ofnrétti oftar. Þar sem hann er vanur að fara ótroðnar slóðir eldar hann alla réttina í eldofni sem hann byggði með vinum sínum í Norður-Frakklandi. Dagskrárgerð og framleiðsla: Kristinn Guðmundsson.
Danskir heimildarþættir um fjölskyldu sem ákveður að einfalda líf sitt - kveðja hina erilsömu Kaupmannahöfn og flytja búferlum í sveitasæluna á Fjóni. Fjölskyldan stundar þar sjálfsþurftarbúskap, gengur um berfætt, horfir ekki á sjónvarp né hlustar á útvarpið og börnin hafa aldrei smakkað hvítan sykur.
Þáttaröð í fjórum hlutum þar sem Eva María Jónsdóttir ferðast um landið og segir sögur af fólki og atburðum úr fortíðinni. Dagskrárgerð: Björn B. Björnsson.
Í lokaþættinum fer Eva María til Drangeyjar og segir frá síðustu æviárum Grettis Ásmundssonar.
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Gestur Sigmars Guðmundssonar er Hermundur Sigmundsson, prófessor í sálfræði, sem telur að íslensk börn séu tilraunadýr í menntakerfi sem sé á rangri leið.
Bein útsending frá keppni í Skólahreysti. Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Umsjón: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson. Stjórn útsendingar: Sturla Skúlason.

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Ekki komið vor alls staðar á landinu 2. Gefins myndasögudagur haldinn í Nexus. Ljúkum þættinum á 270 krökkum í Mosfellsbæ syngja en 270 er einmitt póstnúmer bæjarins.
Bein útsending frá keppni í Skólahreysti. Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Umsjón: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson. Stjórn útsendingar: Sturla Skúlason.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar ræðum við um bókina Mamma og ég við höfund hennar, Kolbein Þorsteinsson. Kolbeinn er sonur rithöfundarins Ástu Sigurðardóttur og í bókinni lýsir hann sviptingasamri æsku þar sem hann og systkini hans hröktust milli heimila og voru loks tekin af móðurinni. Ásta lést vegna áfengisfíknar sinnar 1971. Lóa Hjálmtýsdóttir talar um nýja bók sína sem nefnist Fnæs. Þetta er mikill prentgripur og inniheldur bráðfyndnar skopteikningar sem hún hefur gert síðustu fimm árin. Skáldið Valdimar Tómasson segir ögn frá nýrri ljóðabók sinni sem kallast Svanvængjuð þrá og fer með kvæði úr henni. Í Bókum og stöðum förum við á Drangsnes og í Bjarnarfjörð þar sem verða meðal annarra á vegi okkar höfundarnir Bergsveinn Birgisson og Jón Kalman Stefánsson. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Ótíð í víti eftir Gyrði Elíasson, nýtt úrval smásagna eftir Þórarin Eldjárn og Framtíðin á ferðinni eftir Þórhildi Ólafsdóttur.
Sannsögulegir breskir dramaþættir frá 2023. Árið 1956 flyst Roberts-fjölskyldan frá Bretlandi til Ástralíu í leit að betra lífi. Erfitt reynist að fóta sig í nýju umhverfi þar sem óvæntar áskoranir leynast á hverju strái. Aðalhlutverk: Warren Brown, Faye Marsay og Hattie Hook. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Bresk leikin þáttaröð frá 2023 um kokkinn Carly og teymið hennar sem tekst á við allar þær áskoranir sem fylgja því að reka nýjan veitingastað. Aðalhlutverk: Vinette Robinson, Izuka Hoyle og Hannah Walters. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Önnur þáttaröð þessara bresku spennuþátta. Lana Washington er sprengjusérfræðingur hjá lögreglunni í Lundúnum. Hún hættir lífi sínu nánast daglega og þarf sífellt að vera viðbúin nýjum og breytilegum ógnum. Aðalhlutverk: Vicky McClure, Eric Shango og Nabil Elouahabi. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Þrír listar eru í framboði í Vestmannaeyjum fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Eyþór Harðarson, Sjálfstæðisflokki, Arndís María Kjartansdóttir, Eyjalistanum og Jón Þór Guðjónsson, Miðflokki.
Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Sex listar eru í framboði í Norðurþingi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Eysteinn Heiðar Kristjánsson, Framsóknarflokki og félagshyggjufólks, Helena Eydís Ingólfsdóttir, Sjálfstæðisflokki, Ágúst Sigurður Óskarsson, M-listi samfélagsins, Ómar Gunnarsson, Óskalistanum, Kjartan Páll Þórarinsson, Samfylkingu og Aldey Unnur Traustadóttir, V-listi Velferðar.