Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
61 fullorðinn einstaklingur var lagður inn á sjúkrahús í geðrofi vegna notkunar ADHD-lyfja á árunum 2010-2022. Þetta eru niðurstöður nýrrar íslenskrar rannsóknar, sem birt var í British Medical Journal. Hlutfallslega er geðrof ekki algengur fylgikvilli ADHD-lyfja en í ljósi mikillar notkunar þeirra hér á landi telja geðlæknar að taka þurfi hann alvarlega. Við ræddum við Odd Ingimarsson, geðlækni um málið.
Kastljós hefur á undanförnum vikum ferðast vítt og breytt um landið og tekið púlsinn á ferðaþjónustunni. Áskoranir og verkefni greinarinnar eru fjölbreytt og misjöfn á milli landsvæða en að þessu sinni heimsóttum við Vestfirði.
Feneyjatvíæringurinn í arkitektúr var settur um helgina. Íslandi tekur þátt í fyrsta sinn en fulltrúi okkar er Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt. Kastljós var á staðnum.

24 stærstu sveitarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
Spurningakeppni sveitarfélaganna. Lið Akureyrar og Grindavíkur eigast við. Lið Akureyrar skipa: Erlingur Sigurðarson, Hjálmar Stefán Brynjólfsson og María Pálsdóttir. Lið Grindavíkur skipa: Agnar Steinarsson, Daníel Pálmason og Margrét Pálsdóttir. Umsjónarmenn: Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Spurningahöfundur og dómari: Ólafur B. Guðnason. Aðstoð við dagskrárgerð: Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir. Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson.
Ómissandi upphitun fyrir Eurovision. Í þáttunum verður eins og áður farið yfir öll lögin sem keppa í Eurovision í ár, þau vegin og metin og reynt að spá fyrir um gengi þeirra í keppninni. Umsjónarmaður þáttarins er Felix Bergsson og álitsgjafar þau Guðrún Dís Emilsdóttir og Gunnar Birgisson. Stjórn upptöku: Vilhjálmur Siggeirsson.
Í lokaþætti Alla leið í ár hlustum við á lögin 6 sem sjálfkrafa eru komin áfram í aðalkeppni Eurovision. Þau Felix Bergsson, Gunna Dís og Gunnar Birgisson eru á sínum stað en fá til sín Fannar Sveinsson og Selmu Björnsdóttur. Einnig munu liðin spá fyrir um hverjir verða í efstu 10 sætunum í Eurovision 2025 sem haldin verður 17. maí í Basel, Sviss.

Stuttir sænskir þættir um ólíkar skoðanir fólks á hinum ýmsu málefnum. Hvað gerist þegar tvær manneskjur hittast og rökræða það sem þær eru ósammála um? Læra þær að skilja hvor aðra betur?

Ida er ung norsk kona sem ákveður að taka tilveruna föstum tökum og einsetur sér að bæta sig á flestum sviðum daglegs lífs.
Í þessum þætti fær Ida góð ráð til að halda hreint og fallegt heimili.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Elsa María Guðlaugs - Drífudóttir og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Elvar Örn Egilsson, Hjalti Stefánsson og Björgvin Kolbeinsson.
Í Landanum í kvöld hittum við konu sem lætur gott af sér leiða með saumakap. Við komumst að því hvernig hægt er að nota ljósleiðara til að mæla kvikuhreyfingar í jarðskorpunni, við heimsækjum enskan rithöfund á Snæfellsnesi og við förum í Miðstöðina í Grafarvogi, þar sem hljómsveitir verða til.


Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir. Að þessu sinni fræðumst við um mannslíkamann.

Keppni í skapandi þrautum. Skaparar og keppendur hafa 10 mínútur til að klára þraut og taka þátt í Stórhættulegu spurningakeppninni. Þegar tíminn er hálfnaður draga keppendur babb-spjöld. Að sjálfsögðu endar þetta á vænni slímgusu. Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson.
Finnst þér gaman að spila? En leika þér úti? Hefur þú einhverntímann búið til spil eða úti leik?
Skaparar og keppendur eru: Karl Jóhann Stefánsson og Halla Elísabet Viktorsdóttir og búa þau til skemmtilegan sumarleik.
Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir. Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.
Ylfa og Máni útbúa pizzaveislu.
Pizzan hans Mána:
1 tilbúið pizzadeig
pizzasósa
rifinn pizzaostur
oreganó krydd
ananas
pepperoni
skinka
beikon
Pizzan hennar Ylfu:
1 tilbúið pizzadeig
pizzasósa
buffalo mozzarella
ferskt oreganó
fersk basilika

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann, Gunnar Hrafn Kristjánsson og Kolbrún María Másdóttir. Handrit og ritstjórn: Ari Páll Karlsson.

Íslensk tónlistarmyndbönd.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Bein útsending frá Eurovision í Basel.
Bein útsending frá seinni undankeppni Eurovision í Basel.

Kokkurinn Nisha Katona ferðast um Ítalíu og kynnist matreiðslu í ýmsum héruðum.

Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.

Veðurfréttir
Úkraínsk spennuþáttaröð. Þegar þrjár ungar stúlkur finnast látnar með stuttu millibili í borginni Osijek í Króatíu ákveða tveir rannsóknarlögreglumenn og tveir blaðamenn að hjálpast að við að leysa málin, en rannsókn málsins leiðir þau á hættulegar slóðir. Aðalhlutverk: Kseniia Mishyna, Goran Bogdan og Darko Milas. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Breskir dramaþættir frá 2023. Læknirinn Lucinda Edwards er virt og farsæl í starfi, en eitt örlagaríkt kvöld deyr einn sjúklingur hennar úr of stórum skammti af ópíóíðalyfi og allt breytist. Aðalhlutverk: Niamh Algar, James Purefoy og Lorne MacFadyen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann, Gunnar Hrafn Kristjánsson og Kolbrún María Másdóttir. Handrit og ritstjórn: Ari Páll Karlsson.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Beinar útsendingar frá leikjum í Mjólkurbikar karla í fótbolta.
Leikur Breiðabliks og Vestra í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta.

Umfjöllun um Mjólkurbikar karla í fótbolta.
Farið yfir leikina í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta.