
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er að þrífa húsið þegar ryksugunni er stolið. Hann verður að ná henni aftur áður en allt fer á hvolf!
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Úrslit í liðakeppni kvenna á EM í hópfimleikum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Bein útsending
Íslenskir heimildaþættir frá 2026. Í október 1986 ákváðu Ronald Reagan forseti Bandaríkjanna og Mikhail Gorbatsjev leiðtogi Sovétríkjanna að funda í Reykjavík, öllum að óvörum. Í þáttunum er fjallað um hvernig Íslendingar lögðu allt undir við að halda leiðtogafund risaveldanna með aðeins tólf daga fyrirvara. Hvaða áhrif hafði fundurinn á sálarlíf og sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar og hverjar voru afleiðingar hans? Leikstjóri: Árni Þór Jónsson. Framleiðsla: Republik.
Þúsundir Reykvíkinga vinna baki brotnu allan sólarhringinn við að undirbúa leiðtogafundinn en fulltrúar risaveldanna hafa ekki enn náð niðurstöðu um fundarstað. Fréttamenn ónáða tvífara Reagan í Fossvoginum, íslensk stjórnvöld eru sökuð um gyðingahatur og Hófí heillar heimspressuna. Allt er á suðupunkti.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Heimildarþættir um fjölmenningu í íslensku samfélagi. Mannflóran er fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr og þjóðarímyndin breytist með auknum fjölda fólks af erlendum uppruna. Ljósi er varpað á erfiðleikana sem fólk af erlendum uppruna mætir í íslensku samfélagi og fjallað um kosti fjölmenningar. Umsjón: Chanel Björk Sturludóttir.
Hvað ber framtíðin í skauti sér þegar kemur að fjölmenningu? Í þættinum er fjallað um yngri kynslóðir, skólakerfið, fjölmiðla og sýnileika. Leitast er við að svara því hvort aukinn sýnileiki fólks af erlendum uppruna leiðir til aukins jöfnuðar og hvenær er um að ræða svokallaðan tokenisma.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Íslensk þáttaröð sem fjallar um ævina frá upphafi til enda. Einblínt er á eitt æviskeið í einu og skoðað hvað hver kynslóð er að fást við. Sagðar eru sögur af fólki á öllum aldri og tekist á við stórar spurningar. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson og Sigríður Halldórsdóttir.
Í þessum þætti er fjallað um miðjan aldur. Af hverju er alltaf talað eins og það sé alveg glatað að vera miðaldra? Er þetta ekki einmitt aldurinn þar sem margir endurheimta frelsi og tíma - og fá rýmri fjárráð, eftir að hafa komið börnum til manns. Tíminn þar sem fólk er orðið uppfullt af reynslu og þekkingu; veit hvað það vill og hvað það getur? Er þetta mögulega besta tímabil ævinnar? Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson og Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt


Kóngulóarstrákurinn og frábæru vinir hans berjast gegn illmennum á götum New York borgar.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Kraftaflan, stórkostlegasta kartöfluofurhetja heims, tekst á við Slæmu Ertuna á göngum matvörubúðarinnar.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Sjötta serían af Hvolpsveitinni þar sem uppáhalds hvolparnir okkar lenda í nýjum ævintýrum og leysa skemmtilegt verkefni.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Hvernig hugsa helstu listamenn og hugsuðir Svíþjóðar og hvaðan sækja þau sér innblástur og hvatningu? Í þessum þáttum er rætt við sænska meistara um sköpunarferlið, ákvarðanatöku og það hvernig mistök geta leitt til nýrra sigra.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Lottó-útdráttur vikunnar.
- Bein útsending

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Helstu íþróttafréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Spennandi spurningaþáttur í beinni útsendingu þar sem baggalúturinn Guðmundur Pálsson og sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir halda um stjórnartaumana. Fulltrúar bæjarfélaga um allt land spreyta sig á spurningum, glíma við heilabrot og leysa ýmsar þrautir. Hvaða lið stendur uppi sem landsmeistari? Stjórn útsendingar: Sturla Skúlason.
Grindavík mætir Keflavík. Keppendur frá Grindavík eru Pétur Markan, Berta Dröfn Ómarsdóttir og Ólafur Ólafsson. Keppendur frá Keflavík eru Sólborg Guðbrandsdóttir, Rúnar Ingi Hannah og Baldur Þórir Guðmundsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Bein útsending

Ævisöguleg kvikmynd um bandaríska hæstaréttadómarann Ruth Bader Ginsburg. Fjallað er um upphaf sögulegs ferils hennar og baráttu hennar fyrir jafnrétti kynjanna. Leikstjóri: Mimi Leder. Aðalhlutverk: Felicity Jones, Armie Hammer og Justin Theroux.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Íslensk kvikmynd frá 1995 í leikstjórn Egils Eðvarðssonar. Agnes er ung vinnukona í vist á setri sýslumanns. Hún býr yfir frjálslegu fasi og fegurð sem vekur bæði fýsn og fordóma yfirboðara hennar. Hún fellur fyrir Natani Ketilssyni sem er djarftækur kvennamaður og sjálfmenntaður lyflæknir. Dramatísk samskipti aðalpersónanna þriggja, Agnesar, Natans og sýslumanns, hrinda af stað örlagaþrunginni atburðarás þar sem ástarsamband breytist í martröð ofbeldis og tortímingar. Aðalhlutverk: María Ellingsen, Baltasar Kormákur og Egill Ólafsson. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Breskt drama frá 2025 um tvö pör sem komast að því sonum þeirra var víxlað á fæðingardeildinni. Eiga þau að halda barninu sem þau ólu upp eða fá líffræðilegt barn sitt aftur? Aðalhlutverk: James Norton, Niamh Algar, James McArdle og Jessica Brown Findlay. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Umfjöllun Kveiks um meinta markaðsmisnotkun Ölgerðarinnar, ummæli varaseðlabankastjóra um aðgerðir til að auka atvinnuleysi og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar eru meðal þess sem verður í brennidepli í Vikulokunum.
Rætt verður við Mána Pétursson, umboðsmann og stjórnarmann KSÍ, Svandísi Svavarsdóttur, ritstjóra og fyrrverandi ráðherra, og Sigurð Þ. Ragnarsson jarð- og veðurfræðing í fyrsta hluta, meðal annars um Ölgerðina, illviðri í vikunni og úrslitaleik um að komast á HM í Brasilíu.
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ræðir Seðlabankann, verkalýðshreyfinguna og kjaramál í öðrum hluta.
Að lokum verður rætt við Grím Grímsson, þingmann Viðreisnar, og Ingibjörgu Isaksen, þingmann Framsóknar, um stöðuna í stjórnmálunum og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar.
- Bein útsending