Umræðuþáttur í beinni útsendingu þar sem fólkið í landinu varpar fram spurningum og stendur fyrir máli sínu. Á Torginu er talað um málefnin sem rædd eru af kappi á kaffistofum landsins. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Baldvin Þór Bergsson. Stjórn útsendingar: Þór Freysson.
Ríkisstjórnin hefur lagt til að gengið verði til þjóðaratkvæðagreiðsu um framhald viðræðna við ESB þann 29. ágúst næstkomandi. Þáttur kvöldsins var helgaður spurningum frá almenningi um atkvæðagreiðsluna og mögulega inngöngu í Evrópusambandið. Hátt í 300 spurningar bárust í aðdraganda þáttar.
Þátttakendur:
Erna Bjarnadóttir, stjórnarmaður í Heimssýn
Gunnar Þór Pétursson, lagaprófessor
Katrín Ólafsdóttir, dósent í hagfræði
Konráð S Guðjónsson, hagfræðingur og ráðgjafi
Margrét Adamsdóttir, fréttamaður og umsjónarmaður RÚV polski
Ragnhildur Helgadóttir, lagaprófessor og rektor HR
Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar
Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur
Auk þess var spilað brot úr viðtali við Mörtu Kos, stækkunarstjóra ESB .
Matreiðsluþættir með Kristni Guðmundssyni. Eftir að Kristinn varð pabbi fór hann að elda ofnrétti oftar. Þar sem hann er vanur að fara ótroðnar slóðir eldar hann alla réttina í eldofni sem hann byggði með vinum sínum í Norður-Frakklandi. Dagskrárgerð og framleiðsla: Kristinn Guðmundsson.
Stuttir heimildarþættir um sjö íslenska ljósmyndara, vinnsluaðferðir þeirra og verk. Þættirnir spruttu upp úr þáttaröðinni Ímynd sem fjallaði um ljósmyndun og íslenska ljósmyndara. Framleiðsla og stjórn upptöku: Hrafnhildur Gunnarsdóttir.
Bára Kristinsdóttir lærði ljósmyndun í Svíþjóð og kallar sig samtímaljósmyndara. Eftir hana liggur stórmerkilegt heimildaljósmyndasafn frá réttindabaráttu homma og lesbía frá níunda áratug síðustu aldar til dagsins í dag.
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmar Guðmundsson ræðir við Jónas Sigurðsson tónlistarmann sem snéri við blaðinu og á nú í sífelldri baráttu við að bæta sig sem manneskju og láta gott af sér leiða.
Nýir íslenskir heimildarþættir eftir Láru Zulima Ómarsdóttur. Hvernig er að búa í nánum tengslum við náttúruna? Hvað er það í náttúrunni sem kallar svo sterkt á suma? Lára kynnist viðmælendum sínum og fer með þeim á þeirra uppáhaldsstaði, þar á meðal leynistaði sem fáir þekkja. Hún sýnir svo bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard þessar einstöku náttúrugersemar, en hann sérhæfir sig í ljósmyndun á köldum slóðum. Framleiðsla: Zulima ehf.
Víðir Hólm Guðbjartsson er síðasti bóndinn í Ketildölum. Hann býr á bænum Grænuhlíð, sem stendur í Bakkadal í Arnarfirði á Vestfjörðum. Dalurinn er gróinn með skeljasandsstrandlengju, en ofar eru skriður svo brattar og hömrum girtar að erfiðar eru yfirferðar. Víðir segist hvergi annars staðar vilja vera og fer með okkur á þann stað sem að hans mati er sá fegursti á allri jarðarkringlunni. Að lokum fer Lára með bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard um dalinn.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld berum við saman tímana tvenna með piltum í Hrísey, við fylgjumst með listsköpun á Ísafirði, við hittum bónda sem opnaði veitingastað í gróðurhúsi og kíkjum á rokkaðan söngleik í Keflavík.

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?

Önnur þáttaröð af Monsunum Kára, Villa og Hönnu sem lenda í alls kyns ævintýrum og þurfa að standa saman til að takast á við illmennið Ívar.

Önnur þáttaröð um Lalla, sem færir ykkur allan heiminn þegar hann grípur litina sína. Hann er svo flinkur að teikna hann Lalli!

Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Stormur um allt land á morgun 2. Yngstu nemendur Rimaskóla dugleg að lesa 3. HM í frjálsum innanhúss.

Ferðaþættir í umsjá útivistarhjónanna Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall þar sem þau ferðast með fólki um ósnortna náttúru Íslands.

Vikinglottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Marta Kos, stækkunarstjóri ESB, segir Ísland hafa sérstöðu umfram önnur umsóknarríki vegna EES-samningins og Schengen-samstarfsins. Það sé líklegt til að flýta fyrir aðildarviðræðum kjósi þjóðin að halda þeim áfram. Við ræðum við Mörtu Kos.
Talið er að krabbameinstilfellum eigi eftir að fjölga um allt að 65 prósent hér á landi á næstu tveimur áratugum. Hvernig erum við í stakk búin að takast á við þá fjölgun og hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir krabbamein? Við ræðum við Beatrice Ferver, sérfræðing í krabbameinsforvörnum, og Sigurdísi Haraldsdóttir krabbameinslækni og yfirlækni á Landspítala.
Sara Magnúsdóttir, Hammondleikari, var valin bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum, sem veitt voru fyrir skemmstu. Sara býr nú í New York og kemur ár sinni fyrir borð í tónlistarsenunni þar. Við kynntum okkur þessa björtu von.

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
það er að venju fjölbreyttur og fróðlegur Kiljuþáttur á miðvikudagskvöld. Eva Björg Ægisdóttir segir frá spennusögunni Myrkravaldi sem hún skrifar ásamt frönskum rithöfundi, Jérôme Loubry að nafni. Við fjöllum um merkilegan mann en allsendis óþekktan, Guðmund Arnfinnsson - en um hann flytur Kristján Guðjónsson útvarpsþátt á Rás 1 á páskadag. Guðmundur var bók- og listhneigður einfari, samdi kvæði og vísur, málaði og batt inn bækur, og kom sér upp gríðarlegu bókasafni. Það er nú varðveitt á Hraunhálsi á Snæfellsnesi, í vélaskemmu sem hefur verið breytt í bókahús. Við brugðum okkur þangað og spjöllum við húsráðanda, Jóhannes Eyberg Ragnarsson. Hrannar Bragi Eyjólfsson hefur ritað ævisögu afa síns, séra Braga Friðrikssonar, og segir okkur frá henni. Í Bókum og stöðum förum við í Árneshrepp á Ströndum þar sem verða á vegi okkar Hrafn Jökulsson, Vigdís Grímsdóttir og Þórður kakali. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, Vininn eftir Sigrid Nunez og Líf eftir Reyni Finnberg Grétarsson.

Upptökur frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu.
Sellóleikarinn Kians Soltani flytur eitt dáðasta einleiksverk tónlistarsögunnar, sellókonsert Edwards Elgar. Þá flytur Sinfóníuhljómsveit Íslands svítu úr Eldfuglinum eftir Ígor Stravinskíj undir stjórn Evu Ollikainen aðalhljómsveitarstjóra sveitarinnar. Kynnir er Halla Oddný Magnúsdóttir.
Breskt drama í sex þáttum frá 2025 um húsmóður í Lundúnum sem stofnar næturklúbb í Soho-hverfi við lok seinni heimsstyrjaldar til að framfleyta sér og dætrum sínum. Rekstrinum fylgja tíðir árekstrar við bæði glæpagengi og lögregluna. Aðalhlutverk: Julianne Nicholson, Ian Bonar og Fiona Button. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.
Sænskir leiknir heimildarþættir frá 2023. Farið er yfir sögu Svíþjóðar frá ísöld til dagsins í dag. Yfir 300 sérfræðingar komu að gerð þessarar tíu hluta þáttaraðar þar sem sögulegir viðburðir eru endurskapaðir. Sögumaður: Simon J. Berger. Leikstjórar: Niklas Fröberg og Niklas Vidinghoff.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.