Ómissandi upphitun fyrir Eurovision. Í þáttunum verður eins og áður farið yfir öll lögin sem keppa í Eurovision í ár, þau vegin og metin og reynt að spá fyrir um gengi þeirra í keppninni. Umsjón: Eva Ruza. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.
Tekið er á móti góðum gestum í sjónvarpssal, slegið á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit: Ásgeir Óskarsson, Finnbogi Kjartansson, Magnús Kjartansson og Vilhjálmur Guðjónsson. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson. Umsjónarmaður: Hermann Gunnarsson.
Tónlistarþættir þar sem Jón Ólafsson píanóleikari spjallar við dægurlagahöfunda og tónlistarmenn og tekur með þeim lagið. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Gestur í þessum þætti er Jakob Frímann Magnússon.
Norskir þættir um líkamstjáningu þar sem teknar eru fyrir ýmsar aðstæður sem fólk verður gjarnan óöruggt í. Fjallað er um hvernig hægt er að vinna með líkamstjáningu til að virka öruggari til dæmis á stefnumótum og í atvinnuviðtölum.
Heilinn er undarlegt fyrirbæri og hægt að hafa áhrif á hann og hegðun einstaklinga með mismunandi hætti. Fræðandi, danskur þáttur þar sem sjónhverfingarmanninum og dáleiðandanum Jan Hellesøe er fylgt eftir.
Sænskir þættir um fólk sem stundar handverk af ýmsu tagi.
Skemmtilegir þættir um hugmyndaríku stúlkuna Kötu sem ferðast með fjólubláu kanínunni Mumma til ævintýraheimsins Mummaheims.
Ólivía er sniðug svínastelpa sem tæklar hversdaginn með frumlegum leiðum. Hún dettur gjarnan í dagdrauma og hefur að auki sett sér ýmsar sniðugar lífsreglur.
Háværa ljónið Urri og félagar ferðast í gegnum frumskóginn. Á leiðinni lenda þau í skemmtilegum ævintýrum og þurfa að takast á við áskoranir og leita lausna í sameiningu.
Sprenghlægilegir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er dauðuhræddur við nýja ofur-áburðinn sem sonur sinn hefur búið til, sem hann notar til þess að rækta radísur. Hann vill ekki að radísan verði of stór, því það gæti haft slæmar afleiðingar!
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Krakkafréttir dagsins: 1. Ísland ekki áfram í Eurovision 2. Guðjón vann Söngkeppni Samfés 3. Geimfar til tunglsins 4. Krakkaskýring: Uppstigningardagur
Umsjón: Kolbrún María Másdóttir
Íslensk tónlistarmyndbönd.
Vikinglottó-útdráttur vikunnar.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Beinar útsendingar frá leikjum í umspili um sæti á HM karla í handbolta 2025.
Bein útsending frá fyrri leik Íslands og Eistlands í umspili um sæti á HM karla í handbolta 2025.
Umfjallanir um leiki í umspili um sæti á HM karla í handbolta.
Uppgjör á fyrri leik Íslands og Eistlands í umspili um sæti á HM karla í handbolta 2025.
Margrómuð eintöl Alans Bennetts í nýrri útgáfu. Meðal flytjenda eru Sarah Lancashire, Martin Freeman, Kristin Scott Thomas, Jodie Comer and Maxine Peake. Einleikirnir voru teknir upp á tímum útgöngubanns og samkomutakmarkana í Bretlandi vegna heimsfaraldurs COVID-19. Ný kynslóð fremstu leikara Breta flytja klassísk handrit Alans Bennetts.
Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.
Veðurfréttir
Breskir heimildarþættir sem skoða kvikmyndasöguna í gegnum linsu kvikmyndagerðakvenna. Þættirnir skiptast í 40 kafla sem taka fyrir ólíkar hliðar kvikmyndagerðar og eingöngu er stuðst við dæmi úr kvikmyndum sem konur leikstýra. Sögukonur eru Tilda Swinton, Jane Fonda, Debra Winger, Adjoa Andoh, Kerry Fox, Thandie Newton og Sharmila Tagore. Leikstjóri: Mark Cousins. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Sannsöguleg norsk kvikmynd frá 2018 um Sonju Henie, eina fremstu íþróttakonu heims og margfaldan verðlaunahafa í listhlaupi á skautum. Árið 1936 flutti hún til Hollywood til að gerast kvikmyndastjarna. Aðalhlutverk: Ine Marie Wilmann, Valene Kane og Eldar Skar. Leikstjóri: Anne Sewitsky. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Myndin er hluti af þemanu Konur í kvikmyndagerð.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Krakkafréttir dagsins: 1. Ísland ekki áfram í Eurovision 2. Guðjón vann Söngkeppni Samfés 3. Geimfar til tunglsins 4. Krakkaskýring: Uppstigningardagur
Umsjón: Kolbrún María Másdóttir
Umfjallanir um leiki í umspili um sæti á HM karla í handbolta.
Upphitun fyrir fyrri leik Íslands og Eistlands í umspili um sæti á HM karla í handbolta 2025.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.