Vandaðir þættir þar sem hugur og skynjun barna eru örvuð á sjónrænan hátt án orða.
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Fallegir þættir um litla björninn Móa sem ferðast um allan heiminn á hjólinu sínu.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Friðþjófur forvitni er forvitinn og yndislegur api sem getur oft á tíðum verið full ævintýragjarn. Fylgjumst með ævintýrum hans og mannsins með gula hattinn eiganda hans.
Róbert og hressu hvolparnir í Hvolpasveitinni eru komin aftur og takast á við ný verkefni og nýja þorpara eins og þeim einum er lagið.
Teiknimyndaþættir um Lóu sem er 12 ára og býr með mömmu sinni í stórborg. Lóu finnst hún ekki lengur vera barn og ekki alveg vera unglingur ennþá og reynir að takast á við allar þær tilfinningar sem vakna þegar unglingsárin eru að hefjast.
Blæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstöðvandi gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar.
Skemmtilegir þættir sem um Múmínálfana sem allir ættu að þekkja, í nýju útliti úr smiðju Tove Janson
Kortó, Mýsla og Eik eru ákveðin að sigra Hvalabikarkeppnina, drónaflugkeppni sem leiða á í ljós hver verður arftaki vistfræðisnillingsins Hvals Hvíta.
En Tíkíliðið sækist ekki aðeins eftir sigri; aðeins með því að komast í læri hjá Hval Hvíta fá þau aðgang að nýjustu vistvísindunum og geta forðað því að eyjan þeirra hverfi í hafið.
Sprenghlægilegir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er dauðhræddur um að barnið sitt hverfi í alvörunni þegar það setur á svið töfrasýningu.
Þrjár leiknar stuttmyndir úr smiðju ungra höfunda sem framleiddar voru í tengslum við verkefnið Sögur hjá KrakkaRÚV. Handritin að stuttmyndunum þremur, Fimmhundruðkallinn, Dularfulla hálsmenið, Bókrollan og stuldurinn á hálsfestinni, voru valin í handritasamkeppni Sagna og eru höfundarnir á aldrinum 9-12 ára.
Tíminn stöðvast á afmælisdegi Emblu og vinaleg geimvera rænir henni og bróður hennar því að hún þarf hjálp þeirra til að koma tímanum aftur í gang.
Handrit: Bryndís María Jónsdóttir
Leikstjórn : Hekla Egils
Aðalhlutverk: Bryndís María Jónsdóttir, Friðrik Bjarni Jónsson, María Carmela Torrini
Edduverðlaunaþættir frá 2016 úr smiðju Ævars vísindamanns. Sem fyrr kannar Ævar furðulega og spennandi hluti úr heimi vísindanna. Hann fer meðal annars í svaðilför til Surtseyjar og rannsaka stærstu tilraun í heimi. Stórskemmtilegir þættir fyrir alla fjölskylduna. Dagskrárgerð: Gunnar B. Gudmundsson og Ævar Þór Benediktsson.
Í þætti dagsins ætlar Ævar að skoða alls konar vísindi. Við heimsækjum Vísindavef Háskóla Íslands, skoðum ævafornt sverð, vísindakona dagsins er heimspekingur, við rannsökum hvers vegna okkur kitlar og svo ætlum við að komast að því hvað varð um flöskuskeytin sem Ævar kastaði í hafið fyrir rúmu ári síðan.
Fréttatengdur skemmtiþáttur þar sem keppendur spreyta sig á misalvarlegum spurningum sem sóttar eru í glóðvolgar fréttir og gamlar í bland. Stjórnandi og spyrill er Kristjana Arnarsdóttir og henni til halds og trausts er fréttamaðurinn Birta Björnsdóttir. Framleiðsla: RÚV.
Keppendur kvöldsins eru Gísli Einarsson, Hlédís Sveinsdóttir, Jakob Bjarnar Grétarsson og Nanna Elísa Jakobsdóttir
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir kvöldsins eru Ása Ninna Pétursdóttir, Gísli Örn Garðarsson og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
Við sýnum brot af því besta sem þessi níunda sería hafði upp á að bjóða.
Unun og Páll Óskar enda veturinn með laginu Ástin dugir.
Fjölmiðlamaðurinn Andri Freyr Viðarsson kannar sívaxandi ferðamannastraum til Íslands og reynir m.a. að slá á fordóma sína í garð erlendra ferðamanna. Andri ákveður að leggja land undir fót og upplifa hvernig það er að vera ferðamaður í eigin landi en á ferðalagi sínu um borg og bæi, jökla og eldfjöll, fossa og sanda uppgötvar hann landið sitt upp á nýtt og eignast nýja vini, bæði erlenda og innlenda. Dagskrárgerð: Kristófer Dignus. Framleiðandi: Pegasus.
Í Vík í Mýrdal reynir Andri að yfirstíga lofthræðslu sín og fer í svifvængjaflug. Það mistekst. Þvínæst leggur Andri leið sína niður að Reynisfjöru sem er orðin vægast sagt alræmd og spjallar við ferðamenn og sveitunga um kosti og galla forræðishyggju. Á Stokkseyri skoðar Andri sig um í Álfasafninu áður en hann fer á gamla, góða veitingastaðinn Við fjöruborðið sem hefur stækkað ört samhliða ferðamannastraumnum.
Ferskur og hispurslaus þáttur fyrir ungt fólk. Katrín og Unnsteinn halda áfram að kryfja ýmis óvenjuleg en aðkallandi málefni út frá skemmtilegu sjónarhorni og leita svara við spurningum sem brenna á ungu fólki í dag. Umsjón: Katrín Ásmundsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson. Framleiðandi: Sævar Guðmundsson.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar förum við að Þjóðminjasafninu og hittum Sigrúnu Eldjárn. Hún hefur skrifað og teiknað fallega og skemmtilega bók sem nefnist Sigrún á Safninu og byggist á æskuminningum hennar frá því að alast upp í húsi sem á þeim tíma var ekki bara þjóðminjasafn, heldur líka listasafn og sjóminjasafn. Þórarinn Eldjárn og Kristján Þórður Hrafnsson koma í þáttinn og segja frá 100 kvæðum en það er nýtt úrval ljóða Þórarins sem Kristján hefur valið. Þórarinn flytur eitt sitt frægasta kvæði af mikilli hind. Hjónin Kristín Jórunn Hjartardóttir og Egill Eðvarðsson ferðuðust um landið, hún stakk sér í sjó og synti á fjöldamörgum stöðum en Egill myndaði. Saman settu þau saman bókina Fær í flestan sjó en þar kynnumst við rúmlega áttatíu stöðum sem henta til sjósunds. Við fjöllum um hin svonefndu austfirsku skáld, en þeirra helst voru Einar Sigurðsson í Heydölum og Stefán Ólafsson í Vallanesi. Gagnrýnendur þáttarins ræða um Eimreiðarelítuna eftir Þorvald Logason og Horfinn heim en það er sjálfsævisaga Þrastar Ólafssonar. ,
Bein útsending frá EM karla í fimleikum.
Þáttaröð í 12 hlutum. Í hverjum þætti er fjallað um tvær af þeim 24 þjóðum sem taka þátt á EM karla í fótbolta í Þýskaland. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um evrópumeistaratitilinn.
Stuttir heimildaþættir um ólíkar tegundir myndavéla í gegnum tíðina, fólkið sem notaði þær og myndirnar sem voru teknar með þeim.
Töfratú er fantasíuland dásamlegra álfa og hafmeyja þar sem raunveruleg viðfangsefni á borð við systkinaerjur, sanngirni og sjálfstraust eru könnuð nánar.
Kortó, Mýsla og Eik eru álveðin að sigra Hvalabikarkeppnina, drónaflugkeppni sem leiða á í ljós hver verður arftaki vistfræðisnillingsins Hvals Hvíta og þar af leiðandi fá aðgang að nýjustu vistvísindunum til geta forðað því að eyjan þeirra hverfi í hafið.
Fjórir krakkar eiga að vinna skólaverkefni um víkingatímabilið á Þjóðminjasafninu en leysa í staðinn ævafornan víking úr álögum. Krakkarnir þurfa að leysa sérstakar víkingaþrautir til að hjálpa víkingnum að komast til Valhallar - þangað sem fallnar víkingahetjur fara eftir að hafa dáið í bardaga.
Krakkarnir finna tvær kylfur í leyniherberginu en leggja af stað í leit að knetti (bolta) til að leysa næstu þraut - sem er knattleikur víkinganna.
Knattleikurinn verður æsispennandi og endalokin koma á óvart.
Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson.
Lottó-útdráttur vikunnar.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Sjónvarpsþáttaröð fyrir alla fjölskylduna sem gerist í Lundúnum á Viktoríutímanum. Hetty Feather dvelur enn á Foundling-barnaheimilinu og sem fyrr gengur hún vasklega fram í baráttu sinni gegn harkalegum aðbúnaði barnanna og gegn erkióvininum, hinni illskeyttu og undirförlu Bottomly ráðskonu.
Ómissandi upphitun fyrir Eurovision. Í þáttunum verður eins og áður farið yfir öll lögin sem keppa í Eurovision í ár, þau vegin og metin og reynt að spá fyrir um gengi þeirra í keppninni. Umsjón: Eva Ruza. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.
Bandarísk kvikmynd frá 2011 með Selenu Gomez í aðalhlutverki. Þrjár ungar konur eyða sparifénu í draumaferð til Parísar. Ferðin stendur ekki undir væntingum svo þegar einni kvennanna er ruglað saman við ríka og fræga hefðarkonu sjá þær sér leik á borði og sigla undir fölsku flaggi á vit ævintýranna í Monte Carlo. Aðalhlutverk: Selena Gomez, Leighton Meester og Katie Cassidy.
Sænsk kvikmynd frá 2021 í leikstjórn Ninju Thyberg. Bellu Cherry dreymir um að verða klámmyndastjarna. Hún flytur til Los Angeles, staðráðin í að láta drauminn rætast en áttar sig fljótt á því að það er hægara sagt en gert að öðlast frægð og frama. Aðalhlutverk: Sofia Kappel, Zelda Morrison, Evelyn Claire. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 18 ára.
Myndin er hluti af þemanu Konur í kvikmyndagerð.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.