
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er með krakkana á ströndinni. Krákan grefur upp gamlan olíulampa sem Eddi er hræddur um að hafi að geyma vondan anda og gerir allt sem hann getur til að losna við hann.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Bolli og Bjalla bralla ýmislegt við gerð á þættinum Stundinni okkar.
Í þessum seinasta þætti vetrarins undirbúa álfarnir Bolli og Bjalla, páskana á skrifborðinu hans Bjarma, þó það séu tvær vikur í páska. Bolli hefur alltaf haldið upp á páskana einn og Bjalla hefur aldrei haldið upp á páskana, svo spenningurinn hjá þeim er ótrúlegur.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Teymið hennar Ormhildar hrekst inn í Hvískurklettana. Risavaxin nátttröll ná þeim og hóta að éta þau. Ormhildur kemst að því að tröllin heillast af henni, nema Sniffla sem er hroðalega kvefuð. Ormhildur dettur í poll og þá falla töfrarnir af henni svo tröllin ákveða að steikja allan hópinn. Að lokum nær Ormhildur aftur tökum á aðstæðum og sannfærir tröllin um að sleppa þeim. Álfur flýr með Týndu bókina.
Ævintýri Áróru og Lofts halda áfram þar sem við fáum að fylgjast með þeim uppgötva jörðina, siðina okkar, Ísland og allt frábæra fólkið sem þar býr.
Áróra kynnir Loft fyrir páskunum og saman búa þau til páskaegg. Á meðan fara krakkarnir í páskaeggjaleit í skóginum.
Leikin mynd frá árinu 1970 byggð á samnefndri sögu eftir Astrid Lindgren. Nú hafa vinir Línu, þau Tommi og Anna ákveðið að strjúka að heiman og vilja fyrir alla muni hafa Línu með sér í leit að ævintýrum. Leikarar: Inger Nilsson, Maria Persson og Pär Sundberg. Leikstjóri: Olle Hellbom. Myndin er með íslensku tali.
Hildur Vala Baldursdóttir tekur á móti góðum gestum í nýjum skemmtiþætti þar sem boðið er upp á skemmtiatriði í beinni útsendingu í bland við upptekin atriði og lifandi tónlistarflutning. Tónlistarstjóri: Magnús Jóhann Ragnarsson. Leikstjórn: Allan Sigurðsson, Hannes Þór Arason og Hannes Þór Halldórsson. Framleiðsla: Atlavík. Stjórn útsendingar: Vilhjálmur Siggeirsson.
Íslenska veðrið brotið til mergjar. Gestastjórnendur eru Vala Kristín Eiríksdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson
Þættir þar sem matar- og tónlistarmenning á Íslandi er skoðuð með viðtölum við landsmenn. Gunnar Karl Gíslason og Sverrir Þór Sverrisson hitta fólk víða um land og kynna sér hefðir þeirra og lífsstíl.
Gunnar Karl og Sveppi halda á Snæfellsnesið til Kára á Rifi þar sem þeir ætla að halda páskaveislu. Á leiðinni koma þeir við hjá Ólínu á Arnastapa, Víði í Gröf og á Grundarfirði þar sem þeir gæða sér á ýmsum kræsingum. Á Rifi bíður þeirra svo það krefjandi verk að undirbúa hundrað manna veislu, uppfulla af ljúffengum mat, tónlist og góðum gestum.
Tónlistarveisla frá Fríkirkjunni í Reykjavík á páskadag þar sem Una Torfa kemur fram ásamt valinkunnu tónlistarfólki kirkjunnar. Prestur Fríkirkjunnar í Reykjavík fjallar um merkingu páskanna og fjölmenningar og fólk úr ýmsum trúarhefðum flytur þjóðinni páskakveðjur. Umsjón tónlistar: Gunnar Gunnarsson. Fram koma: Sönghópurinn við Tjörnina, hljómsveitin Mantra og landsþekktir einleikarar. Umsjón: Hjörtur Magni Jóhannsson og Eggert Gunnarsson.
Kvikmyndasafn Íslands geymir fjársjóð af kvikmyndum sem sýna íslenskan veruleika snemma á síðustu öld. Egill Helgason og Gunnar Tómas Kristófersson rýna efni og sýna efni sem jafnvel enginn hefur séð. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Fjallað er um menningarviðburði og hvernig fólk freistaði þess að koma menningu og listum til skila í kvikmyndum. Auk þess eru skoðaðir ýmsir skemmtilegir safngripir í Kvikmyndasafni Íslands.

Ævintýri Áróru og Lofts halda áfram þar sem við fáum að fylgjast með þeim uppgötva jörðina, siðina okkar, Ísland og allt frábæra fólkið sem þar býr.
Áróra kynnir Loft fyrir páskunum og saman búa þau til páskaegg. Á meðan fara krakkarnir í páskaeggjaleit í skóginum.
Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir. Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.
Ylfa og Máni geta ekki beðið eftir páskunum svo þau baka gómsætar og páskalegar möffins með gulum glassúr.
Svona er uppskriftin:
270 g sykur
150 g smjör (bráðið)
2 egg
240 g hveiti
1/2 tsk lyftiduft
50 ml mjólk
1 tsk vanilludropar
Krem:
250g flórsykur
gulur matarlitur
vatn
Aðferð:
Hitið ofninn í 170gráður
Hrærðu saman sykur og smjör þar til
blandan verður létt og ljós
Bætið einu eggi út í í einu.
Blandið þurrefnunum saman við.
Síðan mjólkinni og vanilludropunum.
Setjið deigið í möffinsform og bakið
kökurnar í 14-16 mínútur
Jóga fyrir alla krakka í ævintýraheimi með dýrum og náttúru.
Ævintýrajóga hvetur börn til hreyfingar og að vera meðvituð um líkama sinn og líðan. Það gefur þeim verkfæri sem auðveldar þeim að líða vel í eigin líkama og takast á við daglegt líf. Jógakennari: Þóra Rós Guðbjartsdóttir. Framleiðsla: Erla Hrund Hafsteinsdóttir.
Við kynnumst slöngunni, lærum að hreyfa okkur eins og hún og skoðum styrkleikana hennar.
Hljómskálinn snýr aftur, fullur langt út úr dyrum af nýjum viðtölum, nýjum andlitum og nýrri íslenskri tónlist. Sigtryggur Baldursson og Una Torfadóttir yfirheyra íslenskt tónlistarfólk og greiningardeildin kryfur bransann til mergjar. Framleiðsla: Stjörnusambandsstöðin.
Við skellum okkur vestur á firði og komumst að því hvað er eiginlega í vatninu þarna undir hrikalegum fjöllunum í lygnum fjörðum. Systkinin frá Súgandafirði taka lagið með Súðavíkurdrottningunni Siggu Beinteins.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.

Íslensk heimildarmynd frá 2017 í leikstjórn Áslaugar Einarsdóttur og Davíðs Alexanders Corno. Rætt er við hóp ungmenna og innsýn fengin í líf þeirra, áhugamál, fjölskyldu og framtíðardrauma. Áður var rætt við sama hóp fyrir sjö árum í heimildarmyndinni Sjö ár. Nú eru krakkarnir orðnir fjórtán ára og margt breytt síðan þá. Framleiðandi: Nýr kafli ehf.

Íslensk stuttmynd, byggð á samnefndu ljóði eftir Halldór Laxness Halldórsson, um Aron, sem er á fimmtugsaldri, og hvernig hann tekst á við erfiða lífsreynslu með því að máta sig við staðalímyndir og karlmannlegar klisjur. Myndin hlaut Edduverðlaun árið 2019 sem besta stuttmynd ársins. Leikstjóri: Magnús Leifsson. Meðal leikara eru Sveinn Ólafur Gunnarsson, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Steinþór Hróar Steinþórsson, Kjartan Bjargmundsson og Dóra Jóhannsdóttir.

Íslensk verðlaunamynd frá 2024 í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar. Á fallegum vordegi snýst líf Unu á hvolf á svipstundu. Upphefst rússíbanareið tilfinninga þar sem mörkin milli hláturs og gráts, fegurðar og sorgar, verða stundum óskýr. Aðalhlutverk: Elín Hall, Katla Þórudóttir Njálsdóttir og Mikael Kaaber. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Bandarískur vestri frá 2018 með Joaquin Phoenix, John C. Reilly og Jake Gyllenhaal í aðalhlutverkum. Bræðurnir Eli og Charlie Sisters eru alræmdir leigumorðingjar í villta vestrinu í Bandaríkjunum um miðja 19. öld sem eru ráðnir til að myrða gullgrafara. Það reynist þeim erfiðara en þeir bjuggust við. Leikstjóri: Jacques Audiard. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

An Icelandic film from 2024. Una grapples with grief while harboring a secret, unable to fully express her emotions, as she navigates challenging events swirling around her. Starring: Elín Hall, Katla Þórudóttir Njálsdóttir og Mikael Kaaber. Director: Rúnar Rúnarsson. Not suitable for children under 12 years of age.