Danskir þættir um arkitektúr á tímum loftslagsbreytinga. Hvernig byggjum við borgir fyrir breytt loftslag með stormum og miklum rigningum? Sjálfbær arkitektúr fer vaxandi um heim allan og danskir arkitektar eru þar í fararbroddi. Lausnir við loftslagsvanda sem um leið stuðla að góðu lífi eru í þróun.

Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1987. Umsjón: Hermann Gunnarsson og Elísabet Sveinsdóttir. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.
Lið Menntaskólans á Akureyri mætir liði Fjölbrautaskólans í Breiðholti.

Gamanþættir frá 2009-2010 þar sem leikararnir Karl Ágúst Úlfsson, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason bregða á leik, sprellfjörugir að vanda. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.

Sænskir þættir um fiskveiðar. Þáttastjórnendurnir Emilie Björkman og Martin Falklind ferðast um Svíþjóð, hitta fiskveiðiáhugamenn, stunda veiðar og gefa góð ráð.

Heimildarþættir um danskar fjölskyldur þar sem börnin vaða uppi og ráða lögum og lofum á heimilinu. Ráðalausir foreldrarnir fá til liðs við sig sálfræðing sem sérhæfir sig í barnauppeldi í von um að ná aftur stjórn á afkvæmunum.

Ebba Guðný sýnir áhorfendum hversu auðvelt það getur verið að elda hollan og næringarríkan mat úr góðu hráefni. Matreiðsluþáttur fyrir alla fjölskylduna með skemmtilegu fræðsluívafi. Dagskrárgerð: Sævar Sigurðsson. Framleiðandi: Anna Vigdís Gísladóttir fyrir Saga Film.
Í þessum þætti útbýr Ebba Guðný glútenlausa döðluköku, ostabollur í muffinsformi, brauðhleif, hummur og kasjúpestó. Matargestir hennar í þættinum eru Berglind Guðmundsdóttir, Lína Guðnadóttir, Linda Mjöll Kemp Magnúsdóttir og Sigurlaug Björg Stefánsdóttir.
Íslensk þáttaröð í sex hlutum um dans. Þar er leitað svara við spurningum um hvers vegna fólk dansar, hvernig dansgleðin kviknar og hvers vegna sumir fæðast flinkir dansarar en aðrir taktlausir flækjufætur. Farið verður yfir sögu dansins á Íslandi, mismunandi danstegundir kannaðar og við kynnumst því hvernig dansinn brýst fram á ólíklegustu stöðum. Umsjón: Guðrún Sóley Gestsdóttir. Framleiðsla: Skot.
Þörfin fyrir að dansa brýst út við ólíklegustu aðstæður. Við dönsum ein, umkringd fólki, í myrkri, sundi og á sjúkrahúsum. Dansgleðin er aðstæðum, kunnáttu og takmörkunum yfirsterkari og finnur sér alls staðar farveg. Í þessum þætti kynnumst við dansi sem lækningu og lausn á ýmiss konar vanda.

Ævintýri Tulipop er skemmtileg þáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop. Á hverjum degi gerast ný ævintýri á eyjunni sem sem geta haft áhrifaríkar afleiðingar í för með sér en vináttuböndin reynast ævinlega traust.
Vinirnir eru í feluleik í Leyniskógi þar sem allt er á kafi í snjó. Eina vandamálið er að Freddi kann ekki að fela sig. En viti menn, þegar Freddi gerir lokatilraun til þess að fela sig bak við stórt tré fellur á hann snjódyngja. Hann hefur fundið hinn fullkomina felustað! Nú þarf hann bara að reyna hafa hljótt um sig og standa grafkyrr...

Róbert og hressu hvolparnir í Hvolpasveitinni eru komin aftur og takast á við ný verkefni og nýja þorpara eins og þeim einum er lagið.

Þriðja þáttaröðin um hina vinsælu Blæju og Hælbein fjölskylduna. Daglegt líf fjölskyldunnar gengur sinn vanagang, en hins vegar er enginn dagur eins þegar Blæja og Bára eiga í hlut.

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist. Saman njóta þau tónanna sem óma um Hljómbæ.

Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.

Fimmta þáttaröð þessara einlægu og skemmtilegu þátta þar sem fólk með þroskahömlun skoðar málefni líðandi stundar með sínum augum og spyr spurninga á sinn einstaka hátt. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Íslensk mynd frá 2016 í leikstjórn Tinnu Hrafnsdóttur. Helga er nýfráskilin móðir á fertugsaldri sem neyðist til að horfast í augu við sjálfa sig og það sem mestu máli skiptir í lífinu þegar hún fer að rifja upp æskuminningar. Aðalhlutverk: Guðrún Eva Mínervudóttir, Viðja Dís Ísfeld Rögnvaldsdóttir og Margrét Helga Jóhannsdóttir.

Sænskir heimildarþættir frá 2021 um brautryðjendur í hönnun, arkitektúr og tísku. Í hverjum þætti er ákveðin klassísk hönnun tekin fyrir og samtímahönnuður kynnir sér hana nánar.
Bresk gamanþáttaröð frá 2026 eftir John Morton. Hugh Bonneville mætir til leiks sem Ian Fletcher í aðdraganda heimsmeistaramótsins í fótbolta sem fram fer í Norður-Ameríku í sumar. Aðalhlutverk: Hugh Bonneville, Jessica Hynes og Karl Theobald.
Önnur þáttaröð þessara bresku sakamálaþátta. Rannsóknarlögreglukonan Sarah Collins rannsakar óupplýst hvarf unglingsstúlku sem hefur verið saknað í aldarfjórðung. Þættirnir eru byggðir á glæpasögum eftir Kate London, fyrrum lögreglukonu í London. Aðalhlutverk: Gemma Whelan, Tahirah Sharif og Emmett J. Scanlan. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Velskir spennuþættir frá 2022. Blaðakonan Cat Donato snýr aftur á heimaslóðir sínar í Wales í von um að komast að því hvað varð um vinkonu hennar, Elu Roberts, sem hvarf fyrir 18 árum. Aðalhlutverk: Alexandra Roach, Joanna Scanlan og Iwan Rheon. Þættirnir eru ekki vð hæfi barna yngri en 12 ára.
Danskt fjölskyldudrama frá 2025. Líkamsleifar ungbarns finnast á háalofti í íbúðarhúsi í Kaupmannahöfn. Martha, 87 ára, játar á sig glæpinn og fleiri löngu grafin fjölskylduleyndarmál koma upp á yfirborðið. Aðalhlutverk: Ulla Henningsen, Anette Støvelbæk, Alice Bier og Rikke Eberhardt Isen.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Mexíkó og Ekvador í 32-liða úrslitum á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Fílabeinsstrandarinnar og Noregs í 32-liða úrslitum á HM karla í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Fjallað er um Bandaríkin, Kanada og Mexíkó og hvernig löndin takast á við þá áskorun að halda heimsmeistaramótið.
Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Fjallað er um Spán, Frakkland, Argentínu og Portúgal.

Umfjallanir um leiki á HM karla í fótbolta.
Upphitun fyrir 32-liða úrslit á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Frakklands og Svíþjóðar í 32-liða úrslitum á HM karla í fótbolta.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.