Danskir þættir sem fjalla um einmanaleika hjá miðaldra fólki. Í þáttunum er rætt við fjóra einstaklinga sem upplifa sig einmana, þrátt fyrir að allt líti út fyrir að ganga vel hjá þeim út á við. Í þáttunum fara þau hvert sínar leiðir í tilraunum til að brjótast út úr einmanaleikanum.
Íslensk þáttaröð í átta hlutum. Einlægar og opinskáar frásagnir fólks sem býr við aðstæður í daglegu lífi sem eru ólíkar öllu sem flestir eiga að venjast. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir. Framleiðsla: SERES hugverkasmiðja
Þrautseigja og lífsþrá hafa fært Sissu Sigurðardóttur kraft til að ganga til móts við hvern dag full eftirvæntingar. Sissa fékk skyndilega heilablæðingu og lamaðist fyrir sautján árum.
Þáttaröð í sex hlutum þar sem fjallað er um sameiginlegar minningar íslensku þjóðarinnar á léttan og nýstárlegan hátt. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson leggjast í fullkomlega óvísindalega mannfræðirannsókn til að reyna að skilja íslensku þjóðina betur á hundrað ára afmæli fullveldisins. Meðal þess sem þau skoða eru dellurnar sem þjóðin hefur gengið með í gegnum tíðina, nekt á Íslandi, og svo verða séríslensku sunnudagarnir sérstaklega kannaðirr. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Fjallað er um grísaveislur, sangría og sjó, senjorítur, sjóskíði og bjórlíki enda elska Íslendingar hið ljúfa líf. Skemmtiferðir á skipum og í flugvélum verða rifjaðar upp og sögur sagðar af MS Eddu, Gullfossi, spánarvínum og fyrstu sólarlandaferðunum, sem hófust snemma morguns á barnum á flugstöðinni í Keflavík.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Í dag lærum við nokkkur hugtök sem tengjast kosningunum á laugardaginn. Við munum svo halda áfram að fræðast næstu daga. 1. Útskýring á orðum eins og kjörseðill, kjörklefi og utankjörfundaratkvæðagreiðsla 2. Sigurvegari söngkeppni Samfés 2026.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Fimm dagar eru í sveitarstjórnarkosningar, ýmislegt hefur gengið á í aðdragandanum og fylgi flokka tekið breytingum. En hvernig lítur líklegt meirihlutasamstarf út í borginni og hvaða mál gætu haft áhrif á úrslit kosninga? Gestir Kastljóss eru þeir Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus í stjórnmálafræði og Magnús Sigurbjörnsson fyrrverandi framkvæmdastjóri borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins sem heldur úti hlaðvarpinu Korter í kosningar.
Hvaða störf eiga eftir að lifa af gervigreindarbyltinguna og hver ekki? Við komumst að því síðar í þættinum.
Við lítum einnig á íslenska skálann á Feneyjatvíæringnum, stærstu myndlistarhátíð heims, sem hófst fyrir helgi. Listakonan Ásta Fanney Sigurðardóttir er fulltrúi Íslands á hátíðinni í ár.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Þjóðin gengur til kosninga eftir fimm daga, en um hvað er kosið? Reyndir sveitarstjórnarjaxlar spá í kosningaspilin og skiptast á reynslusögum; þau Birkir Jón Jónsson, Grímur Atlason, Heiða Kristín Helgadóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þættinum.
Sænsk heimildarþáttaröð frá 2025 sem varpar ljósi á lífið í Svíþjóð á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Í tilefni af því að 80 ár voru frá stríðslokum deilir sænska þjóðin persónulegum minningum úr stríðinu í formi bréfa, kvikmynda, ljósmynda og dagbóka. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Finnsk leikin þáttaröð frá 2025. Tuttugu árum eftir að nágranni og æskuást Linnéu hverfur sér hún hann óvænt í sjónvarpinu. Linnéa einsetur sér að komast að því hvers vegna hann hvarf og opnar í kjölfarið á gamalt leyndarmál sem tengist fjölskyldum þeirra beggja. Aðalhlutverk: Sannah Nedergård, Sebastian Blomqvist og Rasmus Slätis. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Önnur þáttaröð þessara dönsku sakamálaþátta. Lögreglumaðurinn Rolf Larsen kemst á snoðir um mansalshring þegar 19 Víetnamar finnast myrtir í farmrými vöruflutningabíls. Aðalhlutverk: Anders W. Berthelsen, Olivia Joof Lewerissa og Zofia Wichlacz. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Norsk heimildarþáttaröð um Noman, sem er múslimi af pakistönskum uppruna og samkynhneigður. Hann leitar svara við því hvers vegna sumir hata fólk eins og hann og hvers vegna hann skammast sín oft fyrir að vera sá sem hann er.