13:40
Kastljós
Aðstöðumunur við íþróttaiðkun, forseti ÍSÍ, iðjuleysi gegn einbeitingarskori

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Faðir þriggja drengja á Egilsstöðum borgaði í fyrra yfir tvær milljónir króna í ferðakostnað vegna þátttöku sona hans á íþróttamótum í Reykjavík. Formaður Hattar segir kostnað farinn að valda misskiptingu í íþróttaiðkun, dæmi séu um heimili sem hafi ekki tök á að senda börn sín á mót. Umsóknir í jöfnunarsjóð ÍSÍ vegna ferðakostnaðar voru fimm sinnum meiri en til var í sjóðnum í fyrra. KSÍ sendi á dögunum áskorun til mennta- og barnamálaráðherra um aðgerðir. Við förum yfir stöðuna fyrir austan og ræðum við Willum Þór Þórsson, forseta ÍSÍ.

Að sitja með hendur í skauti og gera ekki neitt í klukkustund hljómar eins og létt verk en reynist mörgum erfitt á tímum síáreitis. Sumir eru þó farnir að nota þessa aðferð til að endurheimta athyglisgáfu og einbeitingu. Kastljós bað þrjá einstaklinga um að gera ekki neitt og segja frá hvernig gekk.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 24 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,