

Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.

Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.

Vinirnir Begga og Fress leika sér að tölum og leysa saman ýmsar þrautir og gátur.
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?

Fallegir teiknimyndaþættir um óvenjulega vináttu bjarnarins Ernests og músarinnar Célestine.

Litlu lundasystkinin Úna og Bubbi búa á eyjunni Lundakletti. Þau lenda sífellt í nýjum ævintýrum með vinum sínum.

Stærðfræðiofurhetjurnar Millý, Geó og Bói hjálpa krökkum að læra tölur, form og mynstur.

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt

Huggulegir þættir þar sem snjómaðurinn les úr sínum uppáhaldsbókum fyrir litlu mýsnar í bókabúðinni.

Friðþjófur forvitni er forvitinn og yndislegur api sem getur oft á tíðum verið full ævintýragjarn. Fylgjumst með ævintýrum hans og mannsins með gula hattinn eiganda hans.

Töfratú er fantasíuland dásamlegra álfa og hafmeyja þar sem raunveruleg viðfangsefni á borð við systkinaerjur, sanngirni og sjálfstraust eru könnuð nánar.

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist og njóta tónanna sem óma um Hljómbæ.

Íslensk heimildarmynd frá 2011 í leikstjórn Áslaugar Einarsdóttur og Davíðs Alexanders Corno. Rætt er við hóp sjö ára barna, hvaðanæva af landinu, um lífið og tilveruna heima hjá þeim og í skólanum. Ætlunin er að ræða við sama fólk á sjö ára fresti og skrásetja uppvaxtar- og þroskasögu þess. Fyrirmyndin er heimildamyndaserían Seven Up í leikstjórn Michael Apted sem nú hefur fylgt sínum hópi í 49 ár. Framleiðandi: Ljósband ehf.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld lítum við í matarvörubúðir frá ýmsum heimshornum, við köfum á dýpið á Reyðarfirði, við yljum okkur með veðráttuteppum og förum á sýningu minningaleikhússins á Egilsstöðum.
Þáttaröð í umsjón Egils Helgasonar þar sem saga Siglufjarðar er rakin. Bærinn var lengi utan alfaraleiðar en vegna mikils uppgangs á 20. öld varð hann þungamiðja síldveiða sem um skeið voru arðvænlegasta atvinnugrein á Íslandi. Í þáttunum er einnig sagt frá skemmtanalífi, rómantík, slagsmálum, tónlist, skíðaiðkun og einstökum bæjarbrag. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Í fjórða þætti er fjallað um líflegt menningar- og félagslíf sem blómstraði t.d með Karlakórnum Vísi, líflegum árshátíðum og fjölda hljómsveita sem spiluðu á víð og dreif um kaupstaðinn og drógu að gesti. Skíðaíþróttin var ríkjandi og metnaður mikill meðal iðkenda. Skeiðsfossvirkjun varð til, til að sinna orkuþörf síldarvinnslunnar og síldarleit hefst úr lofti og flugfélagið Loftleiðir verður til við Miklavatn.

Valinkunnir tónlistarmenn úr ýmsum áttum safnast saman í sínu fínasta pússi til að skemmta sér og þjóðinni með hljóðfæraslætti og söng. Umsjónarmaður er Sigtryggur Baldursson.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Fróðlegir skemmtiþættir þar sem Sigtryggur Baldursson fjallar um örnefni á Íslandi frá ýmsum sjónarhornum. Dagskrárgerð: Guðlaugur Maggi Einarsson.

Keppnir í bikarkeppni karla í fótbolta.
Leikur Þórs Ak. og FH í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta.
Jón Ólafsson hlustar á plötuna Lifun með Trúbroti ásamt tveimur meðlimum hljómsveitarinnar, þeim Gunnari Þórðarsyni og Magnúsi Kjartanssyni, sem veita áhorfendum innsýn í tilurð laganna á meðan þau spilast. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Heimildarþættir þar sem Halla Ólafsdóttir skoðar hvers vegna fólk flytur landshorna og heimshorna á milli - og hvað það er sem fólk kallar „heima“.
Bjarni Rúnarsson stendur á tímamótum og er að máta sig við kúabú fjölskyldu sinnar. Við hittum hann þegar hann er ekki alveg tilbúinn að taka af sér hatt fjölmiðlamannsins og svo aftur ári síðar. Við kynnumst líka fjölskyldu í Breiðholti sem flutti til höfuðborgarinnar til að tryggja að allir í fjölskyldunni fengju menntun og félagslegar þarfir sínar uppfylltar. Við hittum Pedro Rodrigues sem fylgist með ferðum farfugla á Melrakkasléttu og flutti sjálfur frá Azor-eyjum til Raufarhafnar. Og við siglum með Stíg Stígssyni heim í Hornvík.

Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Teymið hennar Ormhildar hrekst inn í Hvískurklettana. Risavaxin nátttröll ná þeim og hóta að éta þau. Ormhildur kemst að því að tröllin heillast af henni, nema Sniffla sem er hroðalega kvefuð. Ormhildur dettur í poll og þá falla töfrarnir af henni svo tröllin ákveða að steikja allan hópinn. Að lokum nær Ormhildur aftur tökum á aðstæðum og sannfærir tröllin um að sleppa þeim. Álfur flýr með Týndu bókina.
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?

Þættir um óteljandi ævintýri Strumpanna og Kjartans galdrakarls sem fara hér á kostum í Strumpabæ.

Þáttaröð í sex hlutum þar sem nafnarnir og sjónvarpsmennirnir Andri Freyr Viðarsson úr þáttunum Andri á flandri og Andri Freyr Hilmarsson úr Með okkar augum leggja land undir fót og er ferðinni heitið til Bretlandseyja. Þar freista þeir þess að hitta átrúnaðargoð Andra Freys Hilmarssonar, Mr. Bean. Á meðan Andri Freyr Viðarsson reynir að komast í samband við leikarann Rowan Atkinson nota nafnarnir tímann og skoða sig um á Bretlandseyjum.
Nafnarnir fara yfir til Írlands með ferju og þar heldur leitin að Mr. Bean áfram. Í Dyflinni taka Andrarnir lagið með ekta götusöngvara, skoða Guinness-safnið hátt og lágt, virða fyrir sér styttu af forsprakka rokkhljómsveitarinnar Thin Lizzy og heimsækja furðulegt útvarpssafn.

Íslensk tónlistarmyndbönd.
Lag: Er þetta ást?
Flytjandir: Unnsteinn Manúel
Höfundar: Páll Óskar Hjálmtýsson og Örlygur Smári

Lottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Hildur Vala Baldursdóttir tekur á móti góðum gestum í nýjum skemmtiþætti þar sem boðið er upp á skemmtiatriði í beinni útsendingu í bland við upptekin atriði og lifandi tónlistarflutning. Tónlistarstjóri: Magnús Jóhann Ragnarsson. Leikstjórn: Allan Sigurðsson, Hannes Þór Arason og Hannes Þór Halldórsson. Framleiðsla: Atlavík. Stjórn útsendingar: Vilhjálmur Siggeirsson.
Íslenska veðrið brotið til mergjar. Gestastjórnendur eru Vala Kristín Eiríksdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson

Bandarísk gamanmynd frá 2006 í leikstjórn Davids Frankel. Andy dreymir um vera blaðamaður. Henni finnst hún einu skrefi nær draumastarfinu þegar hin valdamikla og miskunnarlausa Miranda, ritstjóri eins stærsta tískutímarits New York-borgar, ræður hana sem persónulegan aðstoðarmann sinn. Það líður ekki á löngu þar til Andy þarf að spyrja sig hversu miklu hún er tilbúin að fórna fyrir framann. Aðalhlutverk: Anne Hathaway, Meryl Streep og Adrian Grenier.

Bresk kvikmynd frá 2020 byggð á sönnum atburðum. Sumarið 1939 tekur Thomas Miller að sér kennslu í heimavistarskóla í smábænum Bexhill-on-Sea. Þangað hafa áhrifamiklar nasistafjölskyldur sent dætur sínar til náms. Lík fyrrverandi kennara finnst í grennd við skólann og Miller er skyndilega á flótta undan lögreglunni. Leikstjóri: Andy Goddard. Aðalhlutverk: Eddie Izzard, Judi Dench og Carla Juri. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir spennuþættir byggðir á samnefndri skáldsögu Anthonys Horowitz. Ritstjórinn Susan Ryeland fær í hendurnar handrit að nýjustu skáldsögu glæpasagnahöfundarins Alans Conway. Þegar hún kemst að því að lokakaflann vantar í handritið hefur hún leit að týndu blaðsíðunum og flækist í leiðinni óvænt í vef lyga og leyndarmála. Aðalhlutverk: Lesley Manville, Conleth Hill og Tim McMullan.

Keppnir í bikarkeppni karla í fótbolta.
Leikur Fram og Víkings í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Bein útsending frá tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Bein útsending frá tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.