Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Teymið hennar Ormhildar hrekst inn í Hvískurklettana. Risavaxin nátttröll ná þeim og hóta að éta þau. Ormhildur kemst að því að tröllin heillast af henni, nema Sniffla sem er hroðalega kvefuð. Ormhildur dettur í poll og þá falla töfrarnir af henni svo tröllin ákveða að steikja allan hópinn. Að lokum nær Ormhildur aftur tökum á aðstæðum og sannfærir tröllin um að sleppa þeim. Álfur flýr með Týndu bókina.
