19:45
Kastljós
Útvarpsþættir um Margréti Löf og grænlenska listakonan Ivínguak Stork Høegh
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Margrét Löf, var í lok síðasta árs dæmd í 16 ára fangelsi fyrir að bana föður sínum og ráðast á móður sína. Þóra Tómasdóttir, blaðamaður, hefur undanfarin misseri unnið að útvarpsþáttunum Vítahringur Margrétar Löf, þar sem fjallað er um Margréti og aðdraganda þess að hún varð föður sínum að bana. Þóra kom í Kastjós og sagði frá þáttunum.
Einnig rætt við grænlensku listakonuna Ivínguak Stork Høegh, sem sýnir verk sín í Norræna húsinu þessi dægrin.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
