
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.

Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi verður hræddur þegar eitt barna hans setur hraðvirka vél á go-kart bílinn sinn og hann vill stoppa hana þar sem hún getur meitt sig. En fyrst verður hann að ná henni.

Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Ný sería um hinn vinsæla Bjössa Brunabangsa! Í þessari seríu fylgjumst við með hetjunni Bjössa brunabangsa, sem elskar að keyra slökkviliðsbíl og slökkva elda. Á hverjum einasta degi leysir hann spennandi verkefni með hjálp frá samstarfsfólki sínu.

Krúttlegir teiknimyndaþættir um litla hafbúa sem eru saman í bekk og elska að syngja og dansa. Kennarinn þeirra er hress gullfiskur sem kennir þeim ýmislegt um lífið og tilveruna.

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist. Saman njóta þau tónanna sem óma um Hljómbæ.

Þættir um óteljandi ævintýri Strumpanna og Kjartans galdrakarls sem fara hér á kostum í Strumpabæ.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Flugvélin brotlendir og Ormhildur og félagar lenda í átökum við risastór skeldýr. Þau sleppa naumlega með því að flýja inn í dimma og óhugnanlega verksmiðju þar sem skeldýrin sjá ekkert.
Hallgrímur er gerður að leiðtoga Breiðholtseyju og sendir Álf að sækja Týndu bókina og stöðva hetjurnar. Inni í verksmiðjunni finnur Ormhildur ískulda frá ósýnilegum krafti sem hvíslar: „DEYÐU“, og skugga með glóandi augu sem eltir þau.
Ævintýri Áróru og Lofts halda áfram þar sem við fáum að fylgjast með þeim uppgötva jörðina, siðina okkar, Ísland og allt frábæra fólkið sem þar býr.
Eftir að hafa séð fréttir af eldsvoða ákveður Áróra að læra allt um slökkviliðið. Á sama tíma rífast krakkarnir í sumarbúðunum um síðasta kleinuhringinn en þau þurfa að keppast um hann í skemmtilegum leik.
Á meðan á fjörinu stendur rífast Sjón og Loft um górillur, já og hárkollur.

Keppni í skíðaskotfimi á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Keppni á listskautum á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Keppni í skautahlaupi á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Keppni á baksleða á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Í Landanum í kvöld förum við á slökkviliðsæfingu í Árnessýslu. Við hittum unga sem aldna á Hrafnistu, við spjöllum við stúlku sem flutti á framandi slóðir og við heimsækjum listmálara sem flutti inn á listasafn.
Þriðja þáttaröð þessara stórbrotnu náttúrulífsþátta með David Attenborough um Jörðina, náttúru hennar og dýralíf á öllum árstíðum. Þættirnir eru talsettir á íslensku en sýndir með ensku tali á RÚV 2.
Leikin þáttaröð frá 2024 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Alexandre Dumas. Sjómaðurinn Edmond Dantè er svikinn af þremur mönnum og ranglega fangelsaður á eyju við strendur Marseille. Mörgum árum síðar tekst honum að flýja fangelsið og leitar uppi fjársjóð sem samfangi hans sagði honum frá. Hann hefur nýtt líf undir dulnefninu greifinn af Monte Cristo og er staðráðinn í að ná fram hefndum á mönnunum sem sviku hann. Aðalhlutverk: Sam Claflin, Mikkel Boe Følsgaard og Ana Girardot. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Dönsk dramamynd frá 1992 í leikstjórn Liv Ullmann. Sofie býr í Kaupmannahöfn ásamt ástríkum foreldrum sínum. Fylgst er með henni takast á við ólíkar áskoranir lífsins yfir tæplega 20 ára tímabil, frá 1886-1907. Myndin er byggð á skáldsögunni Mendel Philipsen and Son, eftir Henri Nathansen. Aðalhlutverk: Karen-Lise Mynster, Erland Josephson og Ghita Nørby. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Keppni í skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Keppni á snjóbrettum á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Keppni í íshokkí á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Keppni á listskautum á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Keppni á listskautum á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Keppni á listskautum á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.