13:40
Kastljós
Bakkakot

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Í fréttaskýringaþættinum Kveik í gær lýstu menn sem voru sendir í fóstur á barnsaldri á sveitabæinn Bakkakot á Suðurlandi grófu ofbeldi sem þeir urðu fyrir, mestmegnis af hálfu húsfreyjunnar á bænum.

Ólöf Ásta Farestsveit, forstjóri Barna og fjölskyldustofu, og Guðbrandur Árni Ísberg, sálfræðingur ræða Bakkakotsmálið, starfshætti barnaverndar í dag, og sálræn áföll í æsku - afleiðingar þeirra og úrvinnslu.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,