21:05
Uppskrift að jólum (1 af 3)
1. þáttur: Kalkúnn, heimagerður ís, graflöx, ljúfir tónar og margt fleira.
Jóhanna Vigdís og Siggi Gunnars færa áhorfendum uppskrift að jólum. Í þáttunum setja þau saman jólaveislu, velta fyrir sér jólalögum, hefðum og ýmsu fleiru. Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson.
www.ruv.is/uppskriftadjolum
Í fyrsta þætti kenndi Jóhanna Vigdís áhorfendum að gera kalkún og tvær góðar sósur sem henta vel með kalkún og ýmsum öðrum hátíðarmat. Þá sýndi hún einnig hvernig gera eigi heimagerðan ís. Við kynntumst Rósu Líf Darradóttur, grænkera, sem sagði frá sínum jólahefðum eftir að hún gerðist vegan. Dísa Óskarsdóttir, hugmyndasmiður, veitti áhorfendum innblástur. Matreiðslumeistarinn Úlfar Finnbjörnsson deildi með áhorfendum ljúffengri rósmarínsósu og svo var það Jóse Luis Anderson eða Andervel sem sá um tónlistina.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 42 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
