Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Atvinnuvegaráðherra hyggst leggja gjald á fjölsótta ferðamannastaði í eigu ríkisins. Heimamenn eru uggandi yfir áformunum. Á sama tíma er deilt um laxeldi í Seyðisfirði en ekkert bólar á frumvarpi um lagareldi. Hanna Katrín Friðrikson er gestur Kastljóss í kvöld.
Christiane Amanpour, aðalfréttaskýrandi CNN í alþjóðamálum, var gestur á árlegri friðarráðstefnu í Höfða. Við ræðum við hana um alþjóðamálin og stöðu fjölmiðla nú á tímum.
Leikrtið Fasteignamartröðin var frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar á dögunum. Við litum við á æfingu.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1998. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari og spurningahöfundur: Gunnsteinn Ólafsson. Stigavörður: Katrín Jakobsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans í Reykjavík og Verzlunarskóla Íslands. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Arnar Þór Stefánsson, Sverrir Guðmundsson og Viðar Pálsson. Lið Verzlunarskóla Íslands skipa Björgvin Ingi Ólafsson, Hallur Örn Jónsson og Óli Njáll Ingólfsson.
- Endursýnt
Þættir sem fjalla um hringrásarhagkerfið, þar sem hlutir og hráefni fara í hring og eins manns rusl verður annars fjársjóður. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Freyr Eyjólfsson. Framleiðsla: Republik.
Hefðbundinni brúðkaupsveislu fylgir ýmiss konar neysla; t.d. í textíl og skreytingum. Við skorum á brúðhjón að halda veislu í anda hringrásarhagkerfisins – og þau vinda sér í verkið.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þáttaröð um eyðibýli á Íslandi. Þar sem á árum áður voru reisulegir sveitabæir með iðandi mannlífi standa nú húsin tóm. Rætt er um byggingu bæjanna og talað við fólk sem tengist stöðunum á einn eða annan hátt. Farið er í Suðurhús í Suðursveit, Hamra á Mýrum, Múlakot í Fljótshlíð, Öxney á Breiðafirði, Heiði á Langanesi og Vatnshorn í Skorradal. Umsjónamaður er Guðni Kolbeinsson og dagskrárgerð annaðist Björn Emilsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Friðarverðlaunahafi Nóbels í ár 2. Staðan á Gaza 3. Opið fyrir innsendingar í Krakkaskaupið og Sögur.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Þættir frá 2011 um ungt og áhugavert fólk sem skarar fram úr á hinum ýmsu sviðum. Skyggnst er inn í líf einnar persónu í hverjum þætti og henni fylgt eftir í sínu daglega lífi. Umsjón: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Stjórn upptöku og myndvinnsla: Eiríkur I. Böðvarsson.
María Birta Bjarnadóttir vakti mikla athygli þegar hún beraði sig án þess að blikna í kvikmyndinni „Órói“ sem sýnd var á síðasta ári. Hún segist vera daðrari af Guðs náð og hrífast af báðum kynjum en auk þess sé hún algjör vinnuþjarkur. Hún opnaði sína fyrstu verslun á Laugarveginum aðeins 19 ára gömul og rekur í dag skóverslunina Maníu. María Birta Bjarnadóttir verslunareigandi og leikkona hleypir Ragnhildi Steinunni inn í líf sitt.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Tveir hafa boðið sig fram til forsetaembættis Alþýðusambands Íslands. Í Kastljósi var efnt til kappræðna og ljósi brugðið á þær deilur sem hafa einkennt verkalýðshreyfinguna síðustu vikur. Einnig var rætt við utanríkisráðherra Kanada um breytta stöðu eftir að tollastríð braust út á milli Kanada og Bandaríkjanna. Þá kynntum við okkur íslenska saumaklúbbinn í menningarhluta þáttarins.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Sannsögulegir breskir spennuþættir frá 2022. Þættirnir segja sögu Nicholas Elliot og Kim Philby, njósnara í bresku leyniþjónustunni og vina til margra ára. Veröld Nicholas umturnast þegar upp kemst að Kim stundaði gagnnjósnir fyrir Sovétríkin. Aðalhlutverk: Guy Pearce, Damian Lewis og Anna Maxwell Martin. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Finnsk heimildarmynd frá 2025 eftir Arthur Franck. Ráðstefna var haldin í Helsinki 1. ágúst 1975 um öryggi og samvinnu í Evrópu. Hana sóttu leiðtogar Bandaríkjanna, Sovétríkjanna, Kanada og allra ríkja Evrópu að Albaníu undanskilinni og undirrituðu Helsinki-sáttmálann til að draga úr spennu milli Sovétríkjanna og Vesturveldanna á tímum kalda stríðsins.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Kveikur er fréttaskýringaþáttur með áherslu á rannsóknarblaðamennsku. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Hákon Pálsson, Helgi Seljan, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson og Sunna Karen Sigurþórsdóttir.
Hver ræður því hvað er í glasinu þínu? Keppinautar Ölgerðarinnar segjast útilokaðir frá viðskiptum við bari, veitingastaði, útihátíðir og jafnvel nemendafélög því samningar við Ölgerðina standi í veginum. Kveikur skoðar samninga og samskipti sem varpa ljósi á það hvernig einn risi getur mótað heilan markað. Ölgerðin hafnar því að útiloka keppinauta.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt