Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, Halla Gunnarsdóttir, nýkjörin formaður VR, og Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis eru gestir Silfursins.
Farið var yfir í stöðuna í efnahagsmálum, þar sem hagtölur eru um margt jákvæðar en ýmis ljón í vegi. Þá hefur Sigurður Ingi átt í vök að verjast eftir að Guðni Ágústsson sendi honum sneið í grein Morgunblaðinu.
Sergey Radchenko er bresk-rússneskur prófessor í sagnfræði við John Hopkins háskóla í Bandaríkjunum. Hann skrifaði á dögunum grein í Foreign Affairs, þar sem hann rifjar upp friðarviðræðurnar sem áttu sér stað í árdaga stríðsins fyrir þremur árum en runnu út í sandinn, og veltir því fyrir sér hvort eitthvað úr þeim viðræðum geti enn átt við í dag. Radchenko var staddur á Íslandi og ræddi við Silfrið við það tækifæri.
