14:00
Á tali hjá Hemma Gunn 1993-1994
23. febrúar 1994

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.

Þátturinn er tileinkaður Söngvakeppni Sjónvarpsins 1994, þar sem valið er það lag sem keppir fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, sem haldin verður á Írlandi. Þrír lagahöfundar semja þrjú lög undir dulnefni – Nætur, Indæla jörð og Stopp – og sérstök dómnefnd velur vinningslagið síðar í þættinum. Formaður dómnefndar er Styrmir Sigurðsson. Þórður Árnason og Jón Kjell leika með Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar í þættinum, þar sem einnig eru rifjuð upp lög frá fyrri árum ásamt föstum liðum. Aðalgestur þáttarins er Valgeir Guðjónsson, og áhorfendur í salnum koma frá Fjölbrautaskólanum í Ármúla.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 23. febrúar 1994.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 33 mín.
e
Endursýnt.
,