Vandaðir þættir þar sem hugur og skynjun barna eru örvuð á sjónrænan hátt án orða.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Símon er hress og skemmtileg kanína sem tekst á við alls kyns áskoranir og lærir af mistökum sínum.
Fyrir Poppý kisukló er ekkert verkefni of erfitt og ekkert vandamál óleysanlegt. Ímyndaraflið keyrir ævintýri hennar áfram og það er nóg af þeim hjá Poppý og vinum hennar.
Hrúturinn Hreinn og félagar hans á bóndabænum lenda í mörgum skemmtilegum ævintýrum í nýjustu seríunni sinni.
Háværa ljónið Urri og félagar ferðast í gegnum frumskóginn. Á leiðinni lenda þau í skemmtilegum ævintýrum og þurfa að takast á við áskoranir og leita lausna í sameiningu.
Krúttlegir teiknimyndaþættir um litla hafbúa sem eru saman í bekk og elska að syngja og dansa. Kennarinn þeirra er hress gullfiskur sem kennir þeim ýmislegt um lífið og tilveruna.
Tillý býr í gulu húsi með fimm góðum vinum. Krókódíl, svíni, hænu, fíl og kanínu. Þau sýna og sanna að vináttan er það besta í heimi.
Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist og njóta tónanna sem óma um Hljómbæ.
Hvolparnir síkátu halda áfram ævintýrum sínum og hafa aldrei verið hressari.
Hressir teiknimyndaþættir um ævintýri sjóræningjanna í Daufhöfn og Matthildi vinkonu þeirra. Byggðir á samnefndum bókum í þýðingu Braga Valdimars Skúlasonar.
Blæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstöðvandi gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar.
Teiknimyndaþættir um Lóu sem er 12 ára og býr með mömmu sinni í stórborg. Lóu finnst hún ekki lengur vera barn og ekki alveg vera unglingur ennþá og reynir að takast á við allar þær tilfinningar sem vakna þegar unglingsárin eru að hefjast.
Kærulausi unglingurinn Don Diego þjálfar sig í skylmingum þar sem hann ætlar sér að takast á við það mikla óréttlætti sem samlandar hans eru beittir af ógnarstjórninnisem þar ræður ríkjum. Hann verður framúrskarandi skylmingamaður og tekursér nafnið sem mjög margir þekkja, Zorro.
Hvernig ætli sumir hlutir sem við erum mjög vön hafi verið fundnir upp? Stórfurðulegu steinaldarmennirnir sýna okkur sínar misheppnuðu tilraunir.
Upptaka frá stórtónleikum Rásar 2 á Menningarnótt. Fram komu: Reykjavíkurdætur, Friðrik Dór, Svala Björgvins og hljómsveitin SSSól. Stjórn útsendingar: Egill Eðvarðsson. e.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Bjargar Magnúsdóttur og Braga Valdimars Skúlasonar. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur þáttarins eru Katla Vigdís Vernharðsdóttir, Hrafnkell Hugi Vernharðsson, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Björn Þorfinnsson
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir kvöldsins eru Jóhannes Þ. Skúlason, Hera Hilmarsdóttir og Pavel Ermolinskij.
Í fréttum Vikunnar heilsum við upp á sænskan góðkunningja.
Það kemur í ljós hvaða leikarar munu leika prinsessurnar í söngleiknum Frost.
Berglind Festival skoðar nýja og villta tegund sem í sumar hefur verið sérstaklega áberandi í íslenskri náttúru; skellihlæjandi með flösku af kampavíni í annarri og veiðistöng í hinni.
Birnir & Gus Gus flytja lagið ...eða?
Íslensk heimildarþáttaröð í tíu hlutum þar sem loftslagsmál eru útskýrð á mannamáli. Fjallað er um áhrif loftslagsbreytinga á lífríki og samfélög, bæði erlendis og á Íslandi, og afleiðingar þeirra. Í þáttunum eru áhrif neysluhyggju nútímans á loftslagsbreytingar skoðuð og rætt hvaða lausnir mannkynið þarf að koma með, bæði til þess að draga úr þessum breytingum og aðlagast nýjum og sjálfbærari lifnaðarháttum.
Hvernig ýta hagkerfi heimsins undir aukin gróðurhúsaáhrif og hver er ábyrgð okkar? Í þessum þætti veltum við fyrir okkur stöðu mála og skoðum hvernig við getum tekið umhverfiskostnað með í reikninginn til að átta okkur á raunverulegum kostnaði.
Dægurþættir frá árunum 1989-1994.
Þættir frá árunum 1989-1990 í umsjón Jóns Gunnars Grjetarssonar. Kynntar eru helstu gönguleiðir á þeim stöðum sem heimsóttir eru. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.
Þáttur um Íslandsmótin í rallý, torfæru og ýmsu öðru. Dagskrárgerð: Bragi Þórðarson.
Við höfum séð Sebastian Klein vera bitinn, brenndan og stunginn - en nú fer hann til Afríku og kynnist áhugaverðum dýrum.
Tvíburarnir Dr. Chris og Dr. Xand kynna nokkrar sturlaðar staðreyndir um mannslíkamann og gera skemmtilegar lífræðilegar tilraunir.
Lottó-útdráttur vikunnar.
Íþróttafréttir.
Sjónvarpsþáttaröð fyrir alla fjölskylduna sem gerist í Lundúnum á Viktoríutímanum. Hetty Feather dvelur enn á Foundling-barnaheimilinu og sem fyrr gengur hún vasklega fram í baráttu sinni gegn harkalegum aðbúnaði barnanna og gegn erkióvininum, hinni illskeyttu og undirförlu Bottomly ráðskonu.
Bandarísk kvikmynd frá 2014 með Julianne Moore í aðalhlutverki. Alice er þekktur og mikilsvirtur prófessor í málvísindum sem uppgötvar að hún er komin með alzheimersjúkdóminn. Hún þarf, ásamt eiginmanni sínum og þremur börnum, að takast á við vaxandi afleiðingar sjúkdómsins. Aðalhlutverk: Julianne Moore, Alec Baldwin og Kristen Stewart. Leikstjórar: Richard Glatzer og Wash Westmoreland.
Spennumynd frá 2014 í leikstjórn Davids Fincher. Líf Nicks breytist í martröð þegar kona hans, Amy, hverfur sporlaust. Tilveran umturnast enn frekar þegar hvarfið verður að einum allsherjar fjölmiðlasirkus. En málin vandast þó fyrir alvöru þegar lögreglan telur sig hafa vísbendingar um að Nick eigi mögulega sjálfur þátt í hvarfi eiginkonunnar. Myndin er byggð á samnefndri metsölubók eftir Gillian Flynn. Aðalhlutverk: Ben Affleck, Rosamund Pike og Neil Patrick Harris. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Önnur þáttaröð þessara bresku sakamálaþátta um hið sérkennilega tvíeyki einkaspæjara, Luellu Shakespeare og Frank Hathaway, sem fæst við margvísleg sakamál í heimabæ þeirra og fæðingarbæ hins eina og sanna Shakespeare, Stratford-upon-Avon. Aðalhlutverk: Mark Benton og Jo Joyner.
Þáttaröðin er hluti af þemanu Sakamálasumar.