14:10
Ísþjóðin með Ragnhildi Steinunni
Daníel Bjarnason

Ísþjóðin með Ragnhildi Steinunni er þáttaröð um ungt og áhugavert fólk sem skarar fram úr á hinum ýmsu sviðum. Skyggnst er inn í líf einnar persónu í hverjum þætti og henni fylgt eftir í sínu daglega lífi. Ragnhildur Steinunn leiðir okkur inn í líf þessara einstaklinga, ræðir við fjölskyldur þeirra og vini og kemst að því hvað þarf til þess að ná langt. Þessir þættir eru endursýndir.

Umsjónarmaður er Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir.

Stjórn upptöku og myndvinnsla er í höndum Eiríks I. Böðvarssonar.

Hljómsveitastjórinn og tónskáldið Daníel Bjarnason er einn yngsti Íslendingurinn sem hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann hlaut nýverið verðlaun alþjóðlega tónskáldaþingsins fyrir eitt verka sinna og þessa dagana vinnur hann að nýrri plötu með hljómsveitinni Sigurrós. Ragnhildur Steinunn heimsækir Daníel og ræðir við hann um lífið og listina.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,