Spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Sigmar Guðmundsson og Brynja Þorgeirsdóttir. Spurningahöfundur: Ólafur B. Guðnason. Dagskrárgerð: helgi Jóhannesson.
Í þessum þætti mætast lið Hveragerðis og Akureyrar.
Lið Hveragerðis skipa Úlfur Óskarsson lektor hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, Pálína Sigurjónsdóttir skrifstofustjóri hjá Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði og Eva Harðardóttir doktorsnemi og stundakennari á menntavísindasviði HÍ.
Lið Akureyringa skipa Hjálmar Stefán Brynjólfsson lögfræðingur í Fjármálaeftirlitinu, Hildur Eir Bolladóttir sóknarprestur í Akureyrarkirkju og Sigurður Erlingsson leiðsögumaður hjá Saga Travel.
Ísþjóðin með Ragnhildi Steinunni er þáttaröð um ungt og áhugavert fólk sem skarar fram úr á hinum ýmsu sviðum. Skyggnst er inn í líf einnar persónu í hverjum þætti og henni fylgt eftir í sínu daglega lífi. Ragnhildur Steinunn leiðir okkur inn í líf þessara einstaklinga, ræðir við fjölskyldur þeirra og vini og kemst að því hvað þarf til þess að ná langt. Þessir þættir eru endursýndir.
Umsjónarmaður er Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir.
Stjórn upptöku og myndvinnsla er í höndum Eiríks I. Böðvarssonar.
Hljómsveitastjórinn og tónskáldið Daníel Bjarnason er einn yngsti Íslendingurinn sem hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann hlaut nýverið verðlaun alþjóðlega tónskáldaþingsins fyrir eitt verka sinna og þessa dagana vinnur hann að nýrri plötu með hljómsveitinni Sigurrós. Ragnhildur Steinunn heimsækir Daníel og ræðir við hann um lífið og listina.

Skemmtiþættir frá 1990 þar sem Spaugstofumenn fást við fréttir líðandi stundar. Leikstjóri: Karl Ágúst Úlfsson. Dagskrárgerð: Tage Ammendrup.

Umfjöllun um leiki á EM kvenna í fótbolta.
Upphitun fyrir leik Danmerkur og Finnlands á EM kvenna í fótbolta.

Umfjöllun um leiki á EM kvenna í fótbolta.
Uppgjör á leik Danmerkur og Finnlands á EM kvenna í fótbolta.

Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2022 og hitti landann fyrir í sínu náttúrulega umhverfi, uppi á fjöllum, úti í garði, inni í skógi og allt um kring. Umsjón: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Elsa María Guðlaugs-Drífudóttir, Þórgunnur Oddsdóttir, Sigrún Hermannsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir.


Sjötta serían af þessum vinsælu hönnunarþáttum.
Stuttmyndir sem gerðar eru eftir handritum krakka sem að send voru inn í Sögur árið 2020.
Þrír krakkar lenda í yfirnáttúrulegum hremmingum þegar þau reyna að finna sér viðfangsefni til að skrifa sögu um. Höfundar: Sveinbjörg Lára Kristjánsdóttir, Ardís Unnur Kristjánsdóttir og Halla Björg Ingvarsdóttir. Leikstjórn og framleiðsla: Bergur Árnason.

Fjórir krakkar í rokkhljómsveit æfa þekkt íslenskt rokklag og semja eigið lag. Í leiðinni fræðumst við um hljóðfærin í hljómsveitinni og rokktónlistarsöguna.
Krakkarnir taka upp sína eigin útgáfu af laginu Zitti E Buoni, ítalska laginu sem sigraði Eurovision árið 2021. Þau fara næst með upptökuna í hljóðver, þar sem þau hljóðblanda eða mixa lagið, líkt og er gert með önnur lög sem gefin eru út. Hljómsveitarmeðlimir: Aldís María Sigursveinsdóttir, Fatíma Rós Joof, Hilmir Þór Snæland Hafsteinsson og Sigurður Ingvar Þórisson. Saxófón leikari: Birkir Blær Ingólfsson. Tónlistarstjóri: Sigurður Ingi Einarsson. Aðstoð í hljóðveri: Jón Þór Helgason.

Lestu og skoðaðu náttúruna

Íslensk tónlistarmyndbönd.
Flytjendur: Egill Ólafsson, Davíð Oddsson og Björgvin Halldórsson.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2022 og hitti landann fyrir í sínu náttúrulega umhverfi, uppi á fjöllum, úti í garði, inni í skógi og allt um kring. Umsjón: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Elsa María Guðlaugs-Drífudóttir, Þórgunnur Oddsdóttir, Sigrún Hermannsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir.

Dönsk heimildarþáttaröð um áhrif heimsfaraldurs af völdum COVID-19 á lífsviðurværi fólks víða um heim. Í þáttunum kynnumst við meðal annars nuddurum á ströndum Taílands sem skyndilega urðu mannlausar og norskum hóteleiganda sem þarf að endurskipuleggja allan rekstur sinn og taka erfiðar ákvarðanir.

Sænskir þættir um fiskveiðar. Þáttastjórnendurnir Emilie Björkman og Martin Falklind ferðast um Svíþjóð, hitta fiskveiðiáhugamenn, stunda veiðar og gefa góð ráð.

Önnur þáttaröð þessara bresku gamanþátta um hina sextugu Cathy sem reynir eftir bestu getu að lifa lífinu eftir fráfall eiginmannsins en samskiptin við fjölskyldu og vini eru oft skrautleg og erfið. Þættirnir hafa unnið til BAFTA-verðlauna. Aðalhlutverk: Lesley Manville, Peter Mullan og Lisa McGrillis.

Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.

Veðurfréttir

Þriðja þáttaröð þessara bresku spennuþátta. Rannsóknarlögreglumennirnir Cassie og Sunny leiða saman hesta sína á ný þegar beinagrind ungrar stúlku, sem hvarf á nýársdag árið 2000, finnst við hraðbraut. Aðalhlutverk: Nicola Walker og Sanjeev Bhaskar. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Þegar forsætisráðherra fær geðhvörf verða samstarfsmenn hans að leggja bæði stöðugleika ríkisins og einkalíf sitt að veði til þess að halda því leyndu fyrir þjóðinni. Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson og Aníta Briem. Leikstjórn: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Arnór Pálmi Arnarson.

Umfjöllun um leiki á EM kvenna í fótbolta.
Upphitun fyrir leik Þýskalands og Spánar á EM kvenna í fótbolta.

Umfjöllun um leiki á EM kvenna í fótbolta.
Uppgjör á leik Þýskalands og Spánar á EM kvenna í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
