15:30
Veröld sem var
Sunnudagar
Veröld sem var

FYRSTA ÞÁTTARÖÐ. Þáttaröð í sex hlutum þar sem fjallað er um sameiginlegar minningar íslensku þjóðarinnar á léttan og nýstárlegan hátt. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson leggjast í fullkomlega óvísindalega mannfræðirannsókn til að reyna að skilja íslensku þjóðina betur á hundrað ára afmæli fullveldisins. Meðal þess sem þau skoða eru dellurnar sem þjóðin hefur gengið með í gegnum tíðina, nekt á Íslandi, og svo verða séríslensku sunnudagarnir sérstaklega kannaðirr. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.

Í fyrsta þætti af Veröld sem var fjalla Bergsson og Blöndal um sunnudagana séríslensku og þá siði og venjur sem íslensk þjóð hóf að þróa með sér um miðja síðustu öld. Þrjúbíó, hasarblöð og leikaramyndir koma við sögu, auk Hússins á sléttunni, sunnudagaskólans, ísbíltúra og heimsókna til ömmu og afa. Stóra spurningin í þættinum er ein af grunnspurningum íslensku þjóðarsálarinnar: hrygg eða læri?

Var aðgengilegt til 12. maí 2021.
Lengd: 25 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliður er textaður.
Engin dagskrá.
,