
Skemmtiþættir frá áttunda áratugnum. Helstu listamenn þjóðarinnar skemmtu í sjónvarpssal. Umsjón: Jónas R. Jónsson og stjórnandi upptöku: Egill Eðvarðsson.
Ríó tríó leiða áhorfendur í gegnum fjölbreytta kvöldskemmtun þar sem dægurlög, gamanþættir og stuttar leikskissur fléttast saman. Meðal tónlistaratriða er flutningur Pálma Gunnarssonar á Ástarsælu, söngur Stefáns Jónssonar á Því ekki að taka lífið létt?, þjóðvísan Ræ ég við róður minn í flutningi Rósu Ingólfsdóttur, og Lína langsokkur með Hönnu Valdísi Guðmundsdóttur. Þá koma einnig fram Guðrún Á. Símonar, Vilhjálmur H. Gíslason og Magnús Sigmundsson ásamt Jóhanni Helgasyni með lagið Sweet Casandra.
Á milli tónlistaratriða flytja Gísli Rúnar Jónsson og Júlíus Brjánsson stutta leikþætti.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 27. janúar 1973.