þessi með gullgítarnum, Gulu húfunni og jólatónleikunum
Í Jólastundinni fara þau Erlen, Gabríel og Sigyn í ævintýralegt ferðalag. Þau ferðast um með hjálp jólaálfanna sem við kynntumst í seinustu Jólastund og ýmissa töfra sem eru á sveimi…
Bolli og Bjalla eyða Stundinni okkar úr manna minnum og þurfa að leggjast á eitt til að koma í veg fyrir að hún gleymist að eilífu.
Þau ferðast í gegnum sögu Stundarinnar okkar og hitta þar fyrrverandi þáttastjórnendur, þá Gunna og Felix, Björgvin Franz, Sigyn Blöndal, Flakkarann og fleiri góðkunningja.
Ætli Bolla og Bjöllu takist að bjarga Stundinni okkar fyrir jól eða ætli þau eyði jólunum líka?