22. þáttur - Seinasti þáttur Góa
Álfadrottningin kemur til Góa og biður hann um hjálp. Dóttir hennar sé veik og þurfi brodd til þess að læknast. Gói stekkur af stað í leit að sveitabæ til að útvega broddinn.
Gloría hefur hætt í Stundarleikhúsinu til að fara að læra leiklist. Stína ritari tekur á móti frænku Brandons, Sjöfn, sem hann hefur ráðið til að taka við af Gloríu. En Sjöfn hefur aðra drauma sem að geimfarinn Elenóra gæti hjálpað með.
Stína: Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir
Sjöfn: Halldóra Malín Pétursdóttir
Elenóra: Vigdís Gunnarsdóttir
Agla: Halldóra Geirharðsdóttir
Ari: Bergur Þór Ingólfsson
Stundin okkar 2015.10.11 : 2. þáttur

Gói og Brandon leikhússtjóri bjóða upp á ógleymanleg ævintýri og fræðandi skemmtun fyrir leikhúsrotturnar sem fylla salinn.
Umsjón: Guðjón Davíð Karlsson. Framleiðsla : Bragi Þór Hinriksson.