Stundin okkar 2002-2003: Bárður og Birta

Leyft öllum aldurshópum

31. þáttur

Birta og Bárður kynna Stundina okkar í þularherberginu. Birta er að undirbúa veislu og Bárður fær að hjálpa. Þegar hún segir honum að þau séu að halda veisluna í tilefni af því að þau eru að hætta í vetur þá verður Bárður ekki sáttur og reynir ýmislegt til að koma í veg fyrir það. / Bárður reynir að spóla til baka en mistekst eitthvað og flakka þau á milli sjónvarpsþátta þ.á.m. Kastljóss og Spaugstofunnar. Sem betur fer komast þau aftur í Stundina okkar og Bárður verður bara að sætta sig við að þetta sé síðasti þátturinn. Allir vinir þeirra úr sjónvarpinu koma og kveðja þau.

Fram komu: Jónatan Garðarsson, Vilhelm Anton Jónsson, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Eva María Jónsdóttir, Kristján Kristjánsson, Örn Árnason, Randver Þorláksson, Sigurður Sigurjónsson, Karl Ágúst Úlfsson og Pálmi Gestsson.

Birt
Aðgengilegt til
Lengd

Stundin okkar 2002-2003: Bárður og Birta

Stundin okkar frá árunum 2002-2003. Umsjón: Jóhann G. Jóhannson og Þóra Sigurðardóttir. Dagskrárgerð: Eggert Gunnarsson og Hlíf Ingibjörnsdóttir

Þættir

,