Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt við Jón Pál Haraldsson, skólastjóra Lauglækjarskóla um innleiðing nýs einkunnarkvarða, fjallað um lyfjagjafir á hjúkrunarheimilum og leiðir til að draga úr þeim. Einnig rætt við írska grínistann og leikarann Dylan Moran.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Hallar á landsbyggðina í verkum ríkisstjórnarinnar? Borið hefur á óánægju á landsbyggðunum með ýmsar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar og jafnvel talað um aðför í því sambandi. Sem dæmi eru nefnd breytingar á Loftbrú, hækkun veiði- og kílómetragjalds, náttúru- og vinnviðagjald, sameining lögregluembætta og fleira. Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Bláskógabyggð, Dagur B. Eggertsson, varaformaður fjárlaganefndar, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, og Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði, fara yfir stöðuna í Silfrinu í kvöld.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1999. Spyrill: Logi Bergmann Eiðsson. Dómari og spurningahöfundur: Illugi Jökulsson. Stigavörður: Þóra Arnórsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans við Sund og Menntaskólans við Hamrahlíð í seinni undanúrslitum. Lið Menntaskólans við Sund skipa Einar Magnús Einarsson, Pétur Már Pétursson og Jón Trausti Reynisson. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Fjalar Hauksson, Inga Þóra Ingvarsdóttir og Jón Árni Helgason.
- Endursýnt
Viðtalsþáttur þar sem Viktoría Hermannsdóttir spjallar við áhugavert fólk á einlægum nótum og fær að heyra alls konar sögur. Dagskrárgerð: Fannar Scheving Edwardsson og Viktoría Hermannsdóttir.
Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins var árið 2024 valin ein af 100 áhrifamestu konum heims af BBC og Harvard. Nýlega opnaði nýtt Kvennaathvarf sem Linda hefur ásamt starfskonum athvarfsins unnið baki brotnu við að koma á laggirnar. Linda býr yfir mikilli lífsreynslu og ræðir við Viktoríu Hermannsdóttur um föður sinn sem var myrtur, dótturina sem hún missti, afdrifarík læknamistök og það mikla og merka starf sem unnið er í Kvennaathvarfinu í þágu kvenna og barna.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Fyrir tíu árum fylgdi hópur kvikmyndagerðamanna börnum í bekknum 0.b í skólanum á Duevej í Frederiksberg í Danmörku í gegnum allt fyrsta skólaárið þeirra. Nú, þegar börnin eru á lokaári grunnskóla, heimsækjum við þau aftur og komumst að því hvernig manneskjur þau eru í dag og hvernig grunnskólinn hefur mótað þau.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Kosningar í Bandaríkjunum 2. Bandaríkjaforseti 3. Pokémon ratleikur og skuggamyndir í Gerðubergi. Ljúkum svo þættinum á skuggalegum skuggamyndum👻
- Dagskrárliðurinn er textaður
Þættir um íslenska dægurtónlist þar sem tónlistarmenn koma í stutt viðtöl og flytja tónlist. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir. Dagskrárgerð: Guðmundur Atli Pétursson.
Fram koma Spacestation, Kári Egils, Superserious, Flott og Soffía.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending
Kveikur er fréttaskýringaþáttur með áherslu á rannsóknarblaðamennsku. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Hákon Pálsson, Helgi Seljan, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson og Sunna Karen Sigurþórsdóttir.
Börn með fjölþættan vanda hafa árum saman verið vistuð í einkareknum búsetuúrræðum. Velta úrræðanna hleypur á milljörðum árlega. Aðstandendur og fyrrverandi starfsmenn lýsa veruleika barna sem fá takmarkaða faglega aðstoð. Kveikur skoðar hvernig markaðurinn varð til og hver fylgist með honum.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Velsk spennuþáttaröð frá 2025. Blaðakona rannsakar banvæna sprengingu sem varð við vatnsból árið 1995. Maður sem dæmdur var fyrir morð er nú laus úr fangelsi 30 árum seinna og heldur enn fram sakleysi sínu. Heimkoma hans ýfir upp gömul sár í samfélaginu og leyndarmál fortíðar leita upp á yfirborðið. Aðalhlutverk: Sian Reese-Williams, Mark Lewis Jones og Nia Roberts. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þriðja þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Rannsóknarlögreglumaðurinn Andri Ólafsson er kominn í rólegra starf innan lögreglunnar og hættur að rannsaka morðmál. En þegar morð er framið á landi sértrúarsafnaðar norður í landi gera draugar fortíðar óvænt vart við sig og Andri neyðist til að horfast í augu við þann sem hann óttast mest - sjálfan sig. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Andri, Hinrika og Trausti starfa nú undir vökulu auga Sonju, yfirmanns fíkniefnalögreglunnar, og eru undir mikilli pressu.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Sannsögulegir breskir dramaþættir frá 2023. Árið 1956 flyst Roberts-fjölskyldan frá Bretlandi til Ástralíu í leit að betra lífi. Erfitt reynist að fóta sig í nýju umhverfi þar sem óvæntar áskoranir leynast á hverju strái. Aðalhlutverk: Warren Brown, Faye Marsay og Hattie Hook. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt