Danskir þættir um móðurhlutverkið. Í þáttunum er fjallað um þær miklu breytingar sem fylgja því að verða móðir, kröfurnar sem mæður gera til sjálfra sín og hvernig gengur að samræma móðurhlutverk, fjölskyldulíf og vinnu.
Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.

Þriggja þátta röð þar sem sænski söngvarinn Peter Jöback fer á slóðir átrúnaðargoða sinna, þeirra Franks Sinatra, Edith Piaf og Charles Aznavours í New York, París og Berlín.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Ísland er næsthamingjusamasta þjóð heims á eftir Finnlandi 2. Er vorið komið? Hvað eru vorjafndægur? Endum þáttinn á Bara Bada Bastu, atriði Svía í Eurovision í fyrra.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Danir ganga að kjörborðinu á morgun og útlit er fyrir spennandi þingkosningar eftir stutta og snarpa kosningabaráttu, en aðeins mánuður er síðan að Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur boðaði til kosninga. Við hittum Clement Kjersgaard einn þekktasta sjónvarpsmann Dana fyrr í dag en hann hefur tekið virkan þátt í umfjöllun danska ríkisútvarpsins fyrir þingkosningarnar. Við spurðum hann sérstaklega um alþjóðamálin sem hafa verið fyrirferðamikil í Danmörku undanfarna mánuði og kosningarnar í því samhengi. En áður en við heyrum í honum ætlum við að ræða við Kristínu Ólafsdóttir fyrrverandi framkvæmdastjóra Sambands Norrænu félaganna og Alexander Kristjánsson varaformann Ung norræn og fyrrum fréttamann á Ríkisútvarpinu.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Seðlabankinn hefur hækkað vexti í fyrsta sinn í tvö og hálft ár. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri kemur til að ræða ákvörðunina og hvert stefnir í efnahagsmálunum. Síðari hluti þáttarins er helgaður borgarpólitíkinni með oddvitunum Ara Edwald frá Miðflokki, Einari Þorsteinsson frá Framsóknarflokki, Kristni Jóni Ólafssyni Pírata og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur frá Vinstrinu. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir, útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.

Breskir heimildarþættir þar sem Bettany Hughes leiðir áhorfendur um sveitir og borgir Indlands með aðstoð innlendra sérfræðinga.
Sænsk leikin þáttaröð frá 2025. Jana snýr aftur til heimabæjar síns til að aðstoða bróður sinn sem glímir við áfengisvanda. Þar dregst hún inn í ástríðufullt en hættulegt samband við hinn dularfulla John og áttar sig á að bærinn býr yfir ótal leyndarmálum. Aðalhlutverk: Amanda Jansson, Rasmus Johansson og Jakob Öhrman. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Sannsögulegir þættir um sænska fjarskipta- og fjölmiðlakónginn Jan Stenbeck. Hann tók við fjölskyldufyrirtækinu af föður sínum við lok áttunda áratugarins og átti stóran þátt í að breyta Svíþjóð úr hefðbundnu iðnaðarsamfélagi í hátækniríki. Á sama tíma og hann átti velgengni að fagna í viðskiptalífinu einkenndist fjölskyldulíf hans af átökum og erjum. Aðalhlutverk: Jakob Oftebro, Zoe Boyle, Iréne Lindh og Malin Crépin.

Dönsk heimildarmynd í tveimur hlutum um Natöchu sem er 28 ára tveggja barna móðir með nýrnabilun. Hún hefur verið á biðlista fyrir gjafanýra í þrjú ár og óttast um líf sitt. Eitt örlagaríkt kvöld í Kaupmannahöfn öðlast hún von um að hægt sé að bjarga lífi hennar.

Íslandsmótið í keilu í Egilshöll.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Veður og vegalokanir