Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Akureyringar fagna afmæli bæjarins um helgina og af því tilefni heyrðum við brot úr Götunni minni, vinsælum þætti Jökuls Jakobssonar. Hann gekk um Brekkuna á Akureyri með Örlygi Sigurðssyni listmálara.
Bergdís Þrastardóttir er nýtekin við sem verkefnastjóri brothættrar byggðar á Tálknafirði og sagði okkur frá kraftinum og jákvæðninni sem hún upplifir í fólkinu þar.
Valdimar Tómasson skáld kom í þáttinn í kvæðastund, rabbaði og flutti ljóð.
Magnús Lyngdal Magnússon var á sínum stað með sígilda tónlist og í dag fjallaði hann um belgíska fiðluleikarann Eugène Ysaÿe. Hann var á sinni tíð kallaður konungur fiðlunnar en lítið er til af upptökum með honum.
Tónlist:
Henning Sommerro - Vårsøg.
Kari Bremnes - Sang til byen.
Slagarasveitin - Alla leið.

07:30

08:30
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Rús - þættir um þjóð og menningu á krossgötum
Í áttunda þætti RÚS er viðmælandi Gunnars Þorra, Árni Þór Sigurðsson sendiherra Íslands í Rússlandi.
Guðni Tómasson veitti aðstoð við dagskrárgerð og samsetningu.
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.

Veðurstofa Íslands.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Unnsteinn Manúel ferðlalangur dagsins og fugl dagins.
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-08-28
Brimkló - Bolur inn við bein.
Retro Stefson - Glow.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist
Útvarpsfréttir.
Utanríkisráðherra segir sér hafa borist alvarlegar hótanir. Málið sé í höndum lögreglu og líf hennar hafi tekið breytingum á síðustu vikum. Samráðherrar hennar segja það óásættanlegt í lýðræðissamfélagi.
Rúm tuttugu prósent kjósenda hafa þegar greitt atkvæði um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Kjörfundur er á morgun. Um 60 fjölmiðlamenn frá 25 löndum eru komnir til landsins - til að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Haraldur fimmti Noregskonungur er látinn. Hann lést í svefni. Nýr konungur Noregs er sonur hans, Hákon áttundi.
Minnst 550 hafa fundist látnir eftir hamfaraflóðin í Nepal og Tíbet. Úrhellisrigning eykur hættu á nýjum flóðum.
Bæjarstjórn Fjallabyggðar óskar eftir að nýja hættumatið vegna ofanflóða á Siglufirði verði endurmetið. Það sýnir að umfangsmiklar varnir ofan við bæinn verja hann ekki jafn vel og talið var.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið út forsetatilskipun um að Ontario-vatn verði kallað Ameríkuvatn. Mark Carney forsætisráðherra Kanada hafnar þessari tillögu alfarið.
Nýtt gegnumlýsingartæki er komið í notkun við vatnsból á Borgarfirði eystra og á að bæta vatnsgæði. Íbúar þurfa ekki lengur að sjóða neysluvatn eftir að e.coli gerlar greindust í vatninu.
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Serbíu í kvöld í forkeppni HM. Stórstjarnan Nikola Jókits er í serbneska liðinu en það íslenska ætlar að reyna að koma Serbum á óvart.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Nýtt langtímahættumat vegna Reykjanesskaga sem Veðurstofa Íslands gerði sýnir að áhrifasvæði eldgosa ná allt frá Reykjanestá að Ölfusá og Hvalfirði. Á þessu svæði eru lykilinnviðir, meðal annars allar fjórar, stjóru jarðmarmavirkjanirnar á svæðinu: Reykjanesvirkjun, Svartsengisvirkjun, Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun. Eldgos í Hengli gæti haft mikil áhrif á þær. Halldór Halldórsson, öryggisstjóri Landsnets og formaður neyðarsamstarfs raforkukerfisins, og Þráinn Friðriksson, se, leiðir jarðhitarannsóknir hjá Orkuveitunni, segja Þetta helst frá þeim sviðsmyndum sem gerðar hafa verið og áhrifum þess ef þær rættust.

Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 15. október 2017: Í þessum þætti er þemað tækni. Hún er margvísleg, það þarf tækni við fiskveiðar, söng og smíðar, sem og ýmislegt annað. Við heyrum af uppfinningamönnum og tæknilegum lausnum á ýmsum vandamálum. Innslög gerðu Dagur Gunnarsson, Jón Þór Kristjánsson og Rúnar Snær Reynisson.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar er önnur platan í safnplötupakka SATT sem kom út 1984.
Samtök alþýðutónskálda og tónlistarmanna, sem skammstafað var sem SATT, voru stofnuð á sínum tíma í kjölfar deilna um skiptingu svonefndra STEF-gjalda sem greidd voru fyrir tónlistarflutning í Ríkisútvarpinu og innheimt af STEFi, Samtökum tón- og textahöfunda. Barátta fyrir réttlátri skiptingu STEF-gjalda var snar þáttur í starfsemi SATT, en einnig vildu samtökin ýta undir lifandi tónlistarflutning og koma upp félagsheimili tónlistarmanna. Eitt af því sem samtökin gerðu til að safna fé til húsnæðiskaupa var að gefa út þrjár safnplötur í 1.000 eintökum árið 1984 og seldu saman sem þrjár plötur á verði einnar, SATT 1, 2 og 3.
Fyrsta platan var vínill vikunnar í síðustu viku, en nú er röðin komin að plötu númer tvö sem hefur að geyma lög með enskum textum. Þriðja platan verður svo vínill vikunnar í næstu viku.
Jóhann G. Jóhannsson hafði umsjón með útgáfunni fyrir hönd SATT og fyrirtæki hans, Listamiðstöðin, annaðist dreifingu hennar. Jóhann áritaði og tölusetti líka plöturnar þúsund.
Fyrsta lagið á A-hliðinni er Love in Motion eftir Jón Þór Gíslason. Hann syngur, Hjörtur Howser leikur á hljómborð, Björn Thoroddsen á gítar, Ásgeir Óskarsson á trommur og Bjarni Sveinbjörnsson á bassa. Edda Borg og Pétur Hjaltested syngja bakraddir.
Þá kemur Allright með hljómsveitinni DRON, Danshljómsveit Reykjavíkur og nágrennis. Máni Svavarsson samdi lagið og Bragi Ragnarsson textann. Bragi syngur, Björn Gunnarsson leikur á bassa, Einar Þorvaldsson á gítar, Máni á hljómborð og Óskar Þorvaldsson á trommur.
That's All! er lag eftir Einar Vilberg. Hann syngur og leikur á gítara, Jón Ólafsson á bassa og Ásgeir Óskarsson á trommur.
Old Song er með hljómsveitinni Centaur. Lag og texti eftir Sigurð Sigurðsson. Sigurður syngur og leikur á munnhörpu, Jón Óskar Gíslason leikur á sólógítar, Hlöðver Erlendsson á hryngítar, Benedikt Sigurðsson á bassa og Guðmundur Gunnlaugsson á trommur.
Pain er lag eftir Hallgrím Bergsson við texta Gunnlaugs Ólafssonar. Eiríkur Hauksson syngur, Ævar Ragnarsson leikur á bassa og gítar, Brynjar Þráinsson á trommur og Hallgrímur á hljómborð.
B-hlið SATT 2 hefst með lagi Magnúsar Þórs Sigmundssonar, Poetry. Magnús syngur og leikur á gítar og Þórir Baldursson á hljómborð og Linn-trommuheila.
My Old Friend er lag með hljómsveitinni Radíus eftir þá Vigni og Þóri Ólafssyni. Textann samdi Jóhann R. Kristjánsson. Þórarinn Ólafsson syngur lagið, Vignir leikur á gítar, Eiður Arnarsson á bassa, Sigurður Ómar Hreinsson á trommur og Birkir Huginsson á saxófón. Einnig koma við sögu Birgir Jóhann Birgisson sem leikur á hljómborð, Ásgeir Óskarsson á slagverk og Guðjón Ólafsson á gítar.
Þá er það lagið Creature með hljómsveitinni Ogopoco. Lagið eftir Þorstein Halldórsson, textinn eftir Arnar Frey Gunnarsson. Arnar Freyr syngur og leikur á gítar, Páll Viðar Tómasson leikur á hljómborð, Björgvin Pálsson á trommur og Þorsteinn Halldórsson á bassa.
Living to Fall flytur hljómsveitin Simon Bello & Dupain. Lag og texti eru eftir Sævar Magnússon og Sævar syngur og leikur á kassagítar. Kjartan Valdimarsson leikur á píanó og hljóðgervil, Úlfar Haraldsson á bassa og Ari Haraldsson á altsaxófón.
Lokalag A-hliðar er Priests með DRON. Einar Þorvaldsson samdi lag og texta. Bragi Ragnarsson syngur lagið, Björn Gunnarsson leikur á bassa, Einar Þorvaldsson á gítar, Máni Svavarsson á hljómborð og Óskar Þorvaldsson á trommur.
Púlsinn tekinn á menningarlífi landsins í lok viku. Rætt um menningu í vikunni sem er að líða, það sem er efst á baugi þessa stundina og framundan um helgina.
Umsjón: Júlía Margrét Einarsdóttir
Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur voru tónlistarfólkið Óttarr Proppé, Salóme Katrín og Ragnheiður Gröndal. Fjallað var um Stein Ármann Magnússon heitinn, íslenkan húmor, Alley Cats grínistans Ricky Gervais, Dolly Parton, Jazzhátíð í Reykjavík og margt fleira.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Brot úr Morgunvaktinni.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru allskonar lög þar sem sungið er um rigninuna og það sem henni fylgir. Grafík flytur lagið Húsið og ég, Bjarni Guðmundsson flytur lag sem hann samdi við ljóðið Velkomin rigning eftir Guðmund Inga Kristjánsson, Ari Jónsson syngur lag sem heitir Rigning, Haukur Hauksson syngur lagið Í roki og regni, Langi Seli og Skuggarnir flytja lagið Rigning og rok,. Selma Björnsdóttir syngur lag sem heitir Taktu mig með, Mannakorn flytja Regnblús, KK syngur Rigning og súld, Mánar flytja lagið Haustregn og Jón Jónsson slær botninn með laginu Rignir endalaust. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Samantekt hvers þema (fimm þátta) úr örþáttaröðinni.
Upprifjun úr Uppástandi frá því í febrúar 2023. Ólafur Þ. Harðarson, Kristján Valur Ingólfsson, Heiðar Jónsson, Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir og Eygló Harðardóttir fjalla um liti.


Að loknum 8. lestri Völsunga sögu flytur Ragnheiður Gyða Jónsdóttir fróðleik um germanska þjóðflokka á meginlandi Evrópu um og eftir Krists burð og fram til ársins 500. Lesinn kafli úr Mannkynssögu 300-630 eftir Sverri Kristjánsson um ættarsamfélag germanskra þjóðflokka (14,35 mín.)
Frumflutt 31.03.1993


frá Veðurstofu Íslands
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Unnsteinn Manúel ferðlalangur dagsins og fugl dagins.
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-08-28
Brimkló - Bolur inn við bein.
Retro Stefson - Glow.
Púlsinn tekinn á menningarlífi landsins í lok viku. Rætt um menningu í vikunni sem er að líða, það sem er efst á baugi þessa stundina og framundan um helgina.
Umsjón: Júlía Margrét Einarsdóttir
Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur voru tónlistarfólkið Óttarr Proppé, Salóme Katrín og Ragnheiður Gröndal. Fjallað var um Stein Ármann Magnússon heitinn, íslenkan húmor, Alley Cats grínistans Ricky Gervais, Dolly Parton, Jazzhátíð í Reykjavík og margt fleira.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Fjölbragðaglíma er íþrótt sem við höfum ekki séð mikið af á Íslandi en í kvöld fer fram fjölbragðaglímusýningin Rumble in Reykjavík á vegum Icelandic Combat Theatre í garðinum fyrir utan Lemmy við Austurstræti. Hvernig fer þetta fram og er þetta alvöru íþrótt? Viktor Reinholdsson og Rakel Ósk komu til okkar.
Ellefta árið í röð bjóða RÚV og Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á Klassíkina okkar, tónlistarveislu í beinni útsendingu frá Hörpu þar sem landsmönnum gefst kostur á að hafa áhrif á efnisskrána. Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, kíkti til okkar og sagði okkur frá opnum faðmi sinfóníunnar.
Kólumbískur matur, transylvanískar kökur, ungverskar flatbökur, víetnamskir réttir, bakkelsi og kökur og kaffidrykkir verða meðal annars í boði á Vegan hátíð á Thorsplani í Hafnarfirði á sunnudaginn. Aldís Amah Hamilton, leikkona og formaður Samtaka grænkera á Íslandi, kom í heimsókn og sagði okkur frá þessari girnilegu hátíð.
Ýmsu hefur verið haldið fram um aðildarviðræður við ESB, sem þjóðin kýs um á morgun. Margrét Einarsdóttir prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík kom til okkar á lokaspretti umræðunnar og fór yfir sviðið.
Við fengum til okkar Dag B. Eggertsson, þingmann Samfylkingar, og Sigríði Andersen, þingmann Miðflokksins sem tókust á um þjóðaratkvæðagreiðsluna á morgun.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Það komu heldur betur góðir gestir í Morgunverkin þennan föstudagsmorgun. Laddi og Stefáns Jakobsson komu báðir til að segja frá tilvonandi tónleikum. Það sem Laddi vissi ekki var að Stefán var með gítarinn með sér og hann og Andri ætluðu að fá hann til að syngja lagið Stebba stuðara í beinni. Í ljós kom að Laddi hafði ekki sungið lagið frá því það var tekið upp á plötu árið 1981. Úr varð að Laddi var Laddi, Stefán var Ragga Gísla og Andri var sögumaðurinn. Lagalisti fólksins var svo á sínum stað, þemað var fegurð.
SEXTETT ÓLAFS GAUKS – Undarlegt með unga menn (Rúnar Gunnarsson)
THE DANDY WARHOLS – Bohemian Like You
FLORENCE AND THE MACHINE – You've Got The Love
DÁÐI FREYR PÉTURSSON – I'm Out and I Wanna Go Home
THE WHITE STRIPES – Seven Nation Army
DOLLY PARTON – 9 to 5
JOHN GRANT, KAKTUS EINARSSON – Follow
ROMANTICS – Talking In Your Sleep
FOO FIGHTERS – Breakout
NIRVANA – Lithium
PULP – Disco 2000
LADDI – Austurstræti
STEBBI JAK – Dönsum inn í hljóða nótt
FONTAINES D.C. – Starburster
SPANDAU BALLET – Gold
MGMT – Electric Feel
SCOPE – Was That All It Was
ROBIN S – Show Me Love
PIXIES – Hey
BJÖRN JÖRUNDUR OG MEMFISMAFÍAN – Ég kenni þér um
BUBBI MORTHENS & MX-21 – Skapar fegurðin hamingjuna?
IVAR KLAUSEN – Sheets of Gold
NICK CAVE & THE BAD SEEDS FEATURING KYLIE MINOGUE – Where The Wild Roses Grow
NADA SURF – Popular
LOUIS ARMSTRONG – What a Wonderful World
MARILYN MANSON – The Beautiful People
ACE OF BASE – Beautiful Life
ASH – Shining Light
R.E.M. – Shiny Happy People
HALLI REYNIS – Gítarar og mandólín
THE BEATLES – In My Life
ENSÍMI – Atari
BADLY DRAWN BOY – Silent Sigh
SUEDE – Beautiful Ones
MANNAKORN – Ó, þú
THE CURE – Friday I'm In Love
OASIS – Champagne Supernova (radio edit)

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Utanríkisráðherra segir sér hafa borist alvarlegar hótanir. Málið sé í höndum lögreglu og líf hennar hafi tekið breytingum á síðustu vikum. Samráðherrar hennar segja það óásættanlegt í lýðræðissamfélagi.
Rúm tuttugu prósent kjósenda hafa þegar greitt atkvæði um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Kjörfundur er á morgun. Um 60 fjölmiðlamenn frá 25 löndum eru komnir til landsins - til að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Haraldur fimmti Noregskonungur er látinn. Hann lést í svefni. Nýr konungur Noregs er sonur hans, Hákon áttundi.
Minnst 550 hafa fundist látnir eftir hamfaraflóðin í Nepal og Tíbet. Úrhellisrigning eykur hættu á nýjum flóðum.
Bæjarstjórn Fjallabyggðar óskar eftir að nýja hættumatið vegna ofanflóða á Siglufirði verði endurmetið. Það sýnir að umfangsmiklar varnir ofan við bæinn verja hann ekki jafn vel og talið var.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið út forsetatilskipun um að Ontario-vatn verði kallað Ameríkuvatn. Mark Carney forsætisráðherra Kanada hafnar þessari tillögu alfarið.
Nýtt gegnumlýsingartæki er komið í notkun við vatnsból á Borgarfirði eystra og á að bæta vatnsgæði. Íbúar þurfa ekki lengur að sjóða neysluvatn eftir að e.coli gerlar greindust í vatninu.
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Serbíu í kvöld í forkeppni HM. Stórstjarnan Nikola Jókits er í serbneska liðinu en það íslenska ætlar að reyna að koma Serbum á óvart.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Doddi sat við stýrið í Popplandinu í síðasta skipti í dag.
Hlustendur fengu skemmtilegt verkefni, að finna uppáhalds "Yeah" lögin sín.
Fyrir vikið var mikið"yeahð" í þætti dagsins.
Lovísu Rut mætir fersk og glott á mánudaginn, Dodda þakkar fyrir sig.
Popplands listi dagsins, Yeah!
SÍÐAN SKEIN SÓL - Blautar varir (Live).
Haukur Ægir Hauksson - Með allt á hreinu.
USHER - Yeah.
Justin Timberlake - SexyBack.
U2 - Desire.
JAMES BROWN & THE FAMOUS FLAMES - I Got You (I Feel Good).
WHAM! - The Edge of heaven.
COLDPLAY - In My Place.
STEREO MC's - Step It Up.
DEPECHE MODE - A Question of Time (80).
Hjörvar Hjörleifsson - Joy.
JET - Are You Gonna Be My Girl.
Daníel Dagur, UB - Barnsfaðir.
Los Bomboneros y sus bombasticos - Bassanótt.
Fontaines D.C. - Marianne.
Burna Boy, Shakira - Dai Dai.
QUARASHI - Stun Gun.
BILLY IDOL - Mony mony.
Atli Dagur Stefánsson - So Long.
Yello - Oh Yeah.
Bee Gees - You Should Be Dancing.
SÓLDÖGG - Ég hef ekki augun af þér.
Morissette, Alanis - Hand in my pocket.
THE BEATLES - She Loves You.
LITLA HAFMEYJAN - JB OUHH.
LITLA HAFMEYJAN - JB OUHH LONG.
ROB BASE AND DJ EZ ROCK - It Takes Two.
BJÖRK - Human Behaviour.
Who, The - Won't get fooled again.
Anderson .Paak, Alissia - Can't Get Enough.
JOAN OSBORNE - One Of Us.
ÞÓRUNN ANTONÍA - So high.
R.E.M. - Man On The Moon.
BRUNO MARS - Locked out of heaven.
FOXY BROWN - Oh Yeah.
Snoop Dogg, Khan, Chaka - Boogie's in My Soul.
LENNY KRAVITZ - Fly Away.
CHARLATANS - The Only One I Know.
Roxette - Dressed for success.
THE KINKS - You Really Got Me.
Backstreet Boys - Backstreet back
Klara Einarsdóttir - Ef hann myndi

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Fréttastofa RÚV.

Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.


Samkvæmis og gleðiþáttur á föstudagskvöldum þar sem Doddi litli leikur hressandi samkvæmispopp síðustu fimm áratuga og dansar með hlustendum inn í helgina.