Garðyrkjuþáttaröð í umsjón Guðríðar Helgadóttur. Í þáttunum fjallar hún um sáningu matjurta, klippingu á berjarunnum og ýmislegt annað sem lýtur að garðyrkju og heilsar upp á fólk sem er að rækta hitt og þetta. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.
Í þessum þætti gróðursetur Gurrý í matjurtagarð á Reykjum og ræðir við Brynhildi Bergþórsdóttur í grenndargörðum við Stekkjarbakka.
Spurningarkeppni framhaldsskólanna 2017. Spyrill er Björn Bragi Arnarsson, spurningahöfundar og dómarar eru þau Steinþór Helgi Arnsteinsson og Bryndís Björgvinsdóttir. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Leikararnir Karl Ágúst Úlfsson, Randver Þorláksson, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason sýna áhorfendum samtíðaviðburði frá nýju sjónarhorni. Stjón upptöku: Björn Emilsson.
Tónlistarþáttur frá 1988 þar sem fjallað er um innlend og erlend dægurlög. Umsjón: Jón Ólafsson, Steingrímur S. Ólafsson, Stefán Hilmarsson og Anna Björk Birgisdóttir. Dagskrárgerð: Ásgrímur Sverrisson.
Sænsk þáttaröð um mikilvægi jákvæðrar líkamsímyndar. Blaðakonan og aðgerðasinninn Anni Emilia Alentola hittir fólk af öllum stærðum og gerðum og ræðir um líkamann og hvernig maður getur losað sig undan samfélagslegum normum.
Víkingur Heiðar Ólafsson og Halla Oddný Magnúsdóttir leiða áhorfendur í tali og tónum um töfraheima sígildrar tónlistar. Þau spjalla á léttu nótunum um tónlist frá ýmsum tímum auk þess sem Víkingur leikur verk af nýlegum hljómplötum sínum á sviði Eldborgar í Hörpu.
Önnur sería af Silfruskógi, sem er bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga.
Lous, Meg, Glen og Kaz uppgötva að hópurinn þeirra er bara einn þeirra fjögurra sem taka þátt í leiknum um að bjarga heiminum.
Hugrökk stelpa bjargar apakónginum, guði sem hafði lengi verið fastur í steini, og leggst í för til að finna sjö heilög handrit og bjarga heiminum frá illu.
Atriði frá Sögum verðlaunahátíð barnanna árið 2020.
Upphafsatriðið á Sögum verðlaunahátíð barnann árið 2020. Baldur Björn Arnarsson, Gabríel Máni Kristjánsson og Hlynur Atli Harðarsson syngja lagið ásamt hjálp góðra dansara.
Íslensk tónlistarmyndbönd.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Gunnar Birgisson fylgir íslensku Eurovision-förunum eftir í Malmö í Svíþjóð, fylgist með undirbúningi og stífum æfingum fyrir keppnina og ræðir við áhugaverða keppendur frá öðrum löndum.
Fréttatengdur skemmtiþáttur þar sem keppendur spreyta sig á misalvarlegum spurningum sem sóttar eru í glóðvolgar fréttir og gamlar í bland. Stjórnandi og spyrill er Kristjana Arnarsdóttir og henni til halds og trausts er fréttamaðurinn Birta Björnsdóttir. Framleiðsla: RÚV.
Ný heimildarmynd sem gerð var í tilefni af að 50 ár eru liðin frá því að ABBA sigraði Eurovision með laginu „Waterloo“. Þannig hófst sigurganga sænsku hljómsveitarinnar. Fjallað er um á persónulegan hátt hvernig þau Agnetha, Björn, Benny og Anni-Frid tókust á við gagnrýni og ýmsa erfiðleika eins og hjónaskilnaði innan hljómsveitarinnar og héldu ótrauð áfram að semja tónlist, koma fram og snerta hjörtu milljóna manna með tónlist sinni. Leikstjóri: James Rogan.
Flokkur breskra sakamálamynda um Morse rannsóknarlögreglumann í Oxford á yngri árum. Hann ræður strembnar morðgátur, kynnist mönnum sem hann á eftir að starfa með næstu áratugina og þróar með sér eftirtektarverð skapgerðareinkenni sem hann á eftir að fínpússa á löngum og gifturíkum ferli. Í helstu hluverkum eru Shaun Evans og Roger Allam. Myndirnar eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Tékknesk verðlaunamynd frá 2020. Grasalæknirinn Jan Mikolase helgar líf sitt umönnun sjúklinga um miðja 20. öld. Yfirvöld landsins vilja nýta hæfileika hans í skiptum fyrir vernd en hversu miklu er Jan tilbúinn að fórna? Aðalhlutverk: Ivan Trojan, Josef Trojan og Juraj Loj. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Myndin er hluti af þemanu Konur í kvikmyndagerð.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.