Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Kortó, Mýsla og Eik eru ákveðin að sigra Hvalabikarkeppnina, drónaflugkeppni sem leiða á í ljós hver verður arftaki vistfræðisnillingsins Hvals Hvíta.
En Tíkíliðið sækist ekki aðeins eftir sigri; aðeins með því að komast í læri hjá Hval Hvíta fá þau aðgang að nýjustu vistvísindunum og geta forðað því að eyjan þeirra hverfi í hafið.
Upptaka frá afmælistónleikum Gunnars Þórðarsonar í Eldborgarsal Hörpu. Á tónleikunum voru flutt þekktustu lög Gunnars. Flytjendur voru landslið íslenskra hljóðfæraleikara og söngvara ásamt gospelkór, barnakór og strengjasveit. Að sjálfsögðu steig sjálft afmælisbarnið á svið og flutti nokkur vel valin lög. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.
Þættir frá 2011-2012 þar sem fjallað er um leiksýningar, kvikmyndir, heimildamyndir, stuttmyndir og leikna sjónvarpsþætti. Leikmyndir, lýsing, hljóð og brellur kvikmynda og leikhúsa eru skoðuð og fylgst með framleiðslu einstakra kvikmyndaverka. Rýnt er í myndlist með upplýsandi og gagnrýnum hætti, nýjar leiksýningar fá ítarlega umfjöllun og gagnrýni og farið yfir feril einstakra listamanna.
Umsjónarmenn eru Þórhallur Gunnarsson, Sigríður Pétursdóttir, Vera Sölvadóttir og Guðmundur Oddur Magnússon. Dagskrárgerð: Guðmundur Atli Pétursson.
Veðurfréttir.
Viðtalsþættir þar sem rætt er við frambjóðendur til embættis forseta Íslands.
Sjálfvirkur texti er í boði á síðu 888 og í beinu streymi í spilara RÚV.
Samantekt frá úrslitakvöldi Músíktilrauna 2024 í Norðurljósasal Hörpu. Kynnir er Ólafur Páll Gunnarsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Finnskir dramaþættir frá 2023 um fólk á miðjum aldri sem fæst við afleiðingar breytingaskeiðsins og foreldrahlutverkið sem engan enda virðist taka. Elena er miðaldra kvensjúkdómalæknir sem á í ástarsambandi við þunglynda sálfræðinginn Patrik. Sambandið virðist dauðadæmt frá upphafi en tekst ástinni að sigra að lokum? Aðalhlutverk: Karoliina Blackburn, Robin Svartström og Eino Kantee. Leikstjóri: Johanna Vuoksenmaa. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Í febrúar 2021 komu Eric Clapton og hljómsveit hans saman í sveitasetri í Suðaustur-Englandi og fluttu þekktar perlur á borð við After Midnight, Layla og Bell Bottom Blues eftir að tónleikum þeirra í Royal Albert Hall var aflýst vegna covid-faraldursins.
Þáttaröð í 12 hlutum. Í hverjum þætti er fjallað um tvær af þeim 24 þjóðum sem taka þátt á EM karla í fótbolta í Þýskaland. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um evrópumeistaratitilinn.