Spurningakeppni framhaldsskólanna þarf vart að kynna og einkennist af stemningu, spennu og virkri þátttöku allra í salnum. Spyrill er Björn Bragi Arnarsson, spurningahöfundar eru Steinþór Helgi Arnsteinsson og Bryndís Björgvinsdóttir en hún er einnig dómari keppninnar. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Heimildarþáttur um krabbamein í blöðruhálskirtli þar sem sjúklingar segja frá reynslu sinni og læknar fjalla um eðli, greiningu og meðhöndlun sjúkdómsins. Á Íslandi greinast um 200 karlmenn með krabbamein í blöðruhálskirtli á hverju ári og um 50 látast af völdum þess. Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Aðalgeir Gestur Vignisson.
Stuttir heimildarþættir frá Noregi um tilfinningaflækjur Ariane, ungrar norskrar konu sem er dökk á hörund og með krullað hár. Á að leyfa afróinu að njóta sín? Má annað fólk koma við hárið? Á hún að vera stolt af krullunum eða bara alls ekki?
Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson.
„Við fáum regluglega útborgað, við hjónin, þegar við heyrum hlátrasköllin, bæði í börnum og fullorðnum. Það eru bestu launin sem er hægt að hugsa sér,“ segir S.Vilborg Arnarsdóttir sem hefur í nær fimmtán ár unnið að uppbyggingu Raggagarðs í Súðavík.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Krakkafréttir dagsins: 1. Big bang tónlistarhátíðá barnamenningarhátið 2. Baby rave 3. Hringátta ljósasýning 4. Regnbogi Meistarans 5. Húsdýragarðurinn 6. Sundlaugadiskó 7. Skólahljómsveit VSB 8. Vaxtarverkir 9. Gestir á opnunarhátíð 10. Leikhópurinn úr Fíusól 11. Maxímús Músíkus
Umsjón: Kolka Fenger Alexander, Bryn Thorlacius
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Fréttatengdur skemmtiþáttur þar sem keppendur spreyta sig á misalvarlegum spurningum sem sóttar eru í glóðvolgar fréttir og gamlar í bland. Stjórnandi og spyrill er Kristjana Arnarsdóttir og henni til halds og trausts er fréttamaðurinn Birta Björnsdóttir. Framleiðsla: RÚV.
Keppendur kvöldsins eru Gísli Einarsson, Hlédís Sveinsdóttir, Jakob Bjarnar Grétarsson og Nanna Elísa Jakobsdóttir
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Bresk leikin þáttaröðin um hina litríku og lífsglöðu Larkin-fjölskyldu. Þættirnir gerast í Kent-sýslu á Englandi um 1950 og eru byggðir á sígildri sögu H. E. Bates, The Darling Buds of May, eða Maíblómin. Aðalhlutverk: Bradley Walsh, Joanna Scanlan og Lydia Page.
Flokkur breskra sakamálamynda um Morse rannsóknarlögreglumann í Oxford á yngri árum. Hann ræður strembnar morðgátur, kynnist mönnum sem hann á eftir að starfa með næstu áratugina og þróar með sér eftirtektarverð skapgerðareinkenni sem hann á eftir að fínpússa á löngum og gifturíkum ferli. Í helstu hluverkum eru Shaun Evans og Roger Allam. Myndirnar eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Ítölsk verðlaunamynd frá 2018. Lazzaro er góðhjartaður ungur maður sem vinnur á tóbaksekru á afskekktum stað á Ítalíu. Hann fær óvenjulega beiðni frá aðalsmanninum Tancredi og vinátta myndast á milli þeirra þegar Lazzaro veitir honum hjálparhönd. Vináttan hefur óvæntar afleiðingar fyrir Lazzaro og leiðir hann á nýjar slóðir. Leikstjóri: Alice Rohrwacher. Aðalhlutverk: Adriano Tardiolo, Agnese Graziani og Luca Chikovani. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Myndin er hluti af þemanu Konur í kvikmyndagerð.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Krakkafréttir dagsins: 1. Big bang tónlistarhátíðá barnamenningarhátið 2. Baby rave 3. Hringátta ljósasýning 4. Regnbogi Meistarans 5. Húsdýragarðurinn 6. Sundlaugadiskó 7. Skólahljómsveit VSB 8. Vaxtarverkir 9. Gestir á opnunarhátíð 10. Leikhópurinn úr Fíusól 11. Maxímús Músíkus
Umsjón: Kolka Fenger Alexander, Bryn Thorlacius
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.