ruv.is / sarpur / hladvarp

Hlaðvarp

Leiðbeiningar

Hlaðvörp má opna með forritinu iTunes. Nóg er að smella á tengil þáttar og hlaðast þá þættirnir sjálfkrafa inn í iTunes. Einnig má opna þættina beint í vafra og hlusta á þá þar.

Athugið

Öllu efni sem miðlað er á þessari síðu er stranglega bannað að dreifa eða fjölfalda á nokkurn hátt né er það ætlað til opinbers flutnings. Efnið er eign Ríkisútvarpsins og miðlun þess eingöngu ætluð til persónulegra einkanota hlustenda RÚV.

Hvað er hlaðvarp?

Podcast er alþjóðlegt orð sem er stytting á orðunum iPod og Broadcast. Íslenska orðið Hlaðvarp vísar til þessa - samsett úr „að hlaða niður“ og „útvarp“. Hlustandi getur sótt til sín efnið og hlustað á það hvar sem er og hvenær sem er.