Ýr var það heillin!

Frumflutt

26. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Ýr var það heillin!

Það þóttu talsverð tíðindi þegar hljómsveit á Ísafirði pakkaði niður í töskur árið 1975 og hélt alla leið til New York borgar í Ameríku til þess hljóðrita sína fyrstu plötu. Þetta gerði hljómsveitin ÝR með aðstoð Stuðmannsins Jakobs Frímanns Magnússonar. Á plötunni finna lagið „Hey kanína“ eða Kanínuna sem Sálin hans Jóns míns tók upp á sína arma síðar.

Á 50 ára afmæli hljómplötunnar, Ýr var það heillin, hóaði útvarpsmaðurinn Kristján Freyr saman eftirlifandi liðsmönnum sveitarinnar, upptökustjóranum Jakobi Frímanni ásamt góðum gestum til þess hlusta á og rifja upp hljómplötuna og upptökuferlið sjálft.

Umsjón: Kristján Freyr Halldórsson

Upptaka í Stúdíói 12: Hrafnkell Sigurðarson

,