Út í vita

Leyft öllum aldurshópum
Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Út í vita

Marsibil Erlendsdóttir vitavörður hefur búið við vita nær allt sitt líf. Hún flutti frá vitanum í Siglunesi yfir á Dalatanga átta ára gömul og hefur búið þar nær óslitið síðan. Dalatangi er ein afskekktasta jörð landsins en malarslóðinn sem tengir vitann við næsta þorp er jafnan lokaður í margar vikur á ári. Einangrunin hefur samt aldrei truflað Marsibil enda fátt sem kemur henni úr jafnvægi. Hún lifir í nánu sambandi við náttúru og dýr staðarins og hefur tileinkað sér einstakt viðhorf til lífsins.

Í þættinum heimsækir Halla Harðardóttir Marsibil og eyðir með henni degi á Dalatanga.

,