Þræðir og þel: Um skáldverk Álfrúnar Gunnlaugsdóttur
Fjallað er um feril og skáldverk rithöfundarins Álfrúnar Gunnlaugsdóttur. Hún steig fram á svið íslenskra bókmennta með smásagnasafninu Af manna völdum árið 1982, en átti síðan eftir að birta sjö skáldsögur, fyrst Þel 1984 en síðast Fórnarleika sem út kom 2016. Rætt er um viðfangsefni og einkenni sagnaverka Álfrúnar og leitast við að greina meginþræði í merkingarheimi þeirra.
Lesarar: Halla Harðardóttir og Björn Þór Sigbjörnsson.
Umsjón hefur Ástráður Eysteinsson.