
Það er ekki allt búið
Heimilda og fléttuþáttur frá árinu 2014 um Gunnar Kr. Guðmundsson tónlistarmann og fyrrum símvörð hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga.Gunnar missti sjón og hægri hönd í sprengingu 10 ára gamall. Það var um jólin 1946.
Birt verða brot úr viðtölum sem Jónas Jónasson, Ágústa Gunnarsdóttir og Arnþór Helgason tóku við hann. Gunnar var fyrsti alblindi maðurinn sem fór út á almennan vinnumarkað hér á landi.
Þá verður flutt tónlist eftir Gunnar og Sigurbergur Baldursson, Arnþór Helgason, María Sigurðardóttir og Gísli Helgason segja frá honum.
Umsjón: Gísli Helgason