Sumartónleikar

Tenórsöngvarinn Jonas Kaufmann á útitónleikum með Fílharmóníusveit Berlínar

Hljóðritun frá tónleikum Fílharmóníusveitar Berlínar sem fram fóru á Waldbühne-útileiksviðinu í Berlín, 26. júní sl.

Sérstakur gestur var tenórsöngvarinn Jonas Kaufmann.

Á efnisskrá:

-Atriði úr óperum eftir Giuseppe Verdi, Ruggero Leoncavallo, Francesco Cilea og Umberto Giordano.

-Tónaljóðin Gosbrunnar Rómarborgar og Furur Rómarborgar eftir Ottorino Respighi.

Einsöngvari: Jonas Kaufmann.

Stjórnandi: Kirill Petrenko.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Birt

26. júlí 2026

Aðgengilegt til

25. ágúst 2026

Sumartónleikar

Þættir

,